Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 143

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
27.11.2024 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2201127 - Björkurstekkur 5-7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnunarstjóri fyrir hönd Gól ehf sendir inn breyttan aðaluppdrátt þar sem búið er að breyta úr sléttu þaki yfir í valmaþak ásamt því að húsið hefur verið minnkað um 5m².
Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
2. 2410409 - Breiðumýrarholt/Holt - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hildur Bjarnadóttir hönnunarstjóri fyrir hönd Lindu Helgadóttur sækir um leyfi til að byggja gestahús. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr 142 og var frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Helstu stærðir eru; 49,2m² & 172,2m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2410138 - Hafnarbrú 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnunarstjóri fyrir hönd Björgunarsveitina Björg Eyrarbakka sækir um leyfi til að byggja aðstöðuhús. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 142 og var því frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Helstu stærðir: 543,4 m2 og 3.226,7 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir eldvarnareftirlits Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2411152 - Laxalækur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Gísli G. Gunnarsson hönnunarstjóri fyrir hönd Andreas Ólaf Ketel sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við íbúðarhús.
Helstu stærðir eru; 48,4m² & 153,4m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við skipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
5. 2411268 - Hjarðarholt 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Davíð Árnason hönnunarstjóri f.h. Hlyns Arnórssonar sækir um leyfi til að byggja við bílskúr 24,4 m2 og breyta notkun úr bílskúr í íbúð. Einnig er tilkynnt um smáhýsi 14,4 m2.
Stærð íbúðar verður 77,1 m2 og 215 m3.

Málið tengist máli nr. 2409248 þar sem gerðar voru athugasemdir við óleyfisframkvæmdir, krafist greinargerðar og að viðlögðum dagsektum. Umsókn þessi er viðbrögð við athugasemdunum.
Deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Erindinu er hafnað þar sem umrædd viðbygging er ekki í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar varðandi brunavarnir á lóðarmörkum.
Fundurinn frestar ákvörðun um álagningu dagsekta sbr. mál 2409248.
Hafnað
6. 2411238 - Norðurbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jón Magnús Halldórsson hönnunarstjóri fyrir hönd Sigurðs Rúnar Steinarssonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 80m² & 266,1m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
7. 2411180 - Norðurleið 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
María Guðmundsdóttir hönnunarstjóri fyrir hönd Gísla Heiðberg Stefánssonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 211,7m² & 1.299,2m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
8. 2411196 - Suðurbraut 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þórey Edda Elísdóttir hönnunarstjóri fyrir hönd Jón Helga Daníelsson sækir um leyfi til að byggja skemmu.
Helstu stærðir eru; 112m² & 488,5m³.

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
9. 2202204 - Tryggvagata 10-12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ásgeir Ásgeirsson hönnunarstjóri fyrir hönd JÁVERK ehf sendir inn breyttan aðaluppdrátt þar sem búið er að koma fyrir djúpgámum ásamt því að fækka bílastæðum á jarðhæð.
Byggingarfulltrúi samþykkir fram lagða teikningu.
10. 2411199 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Lyfjaval að Eyravegi 42
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Lyfjaval um nýtt starfsleyfi fyrir apótek að Eyravegi 42, fnr. F2254922.
Byggingarfulltrúi getur ekki veitt jákvæða umsögn þar sem öryggisúttekt hefur ekki farið fram.
Frestað

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica