Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 161

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
26.02.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
Heiðs Ösp Kristjánsdóttir kemur inn á fundinn kl.8:15
1. 2602118 - Beiðni um ráðningu umfram fjárhagsáætlun - sumarafleysing 2026
Minnisblað deildarstjóra velferðarþjónustu og sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 11. febrúar, þar sem óskað er efir ráðningu umfram fjárhagsáætlun í barnaverndarþjónustu vegna sumarafleysingar 2026.
Bæjarráð tekur jákvætt í beiðni um aukið stöðugildi í barnaverndarþjónustu yfir sumarmánuðina júní til ágúst 2026. Bæjaráð felur bæjarstjóra að leggja fyrir viðauka vegna tímabundinnar afleysingar innan velferðarþjónustu frá júní til ágúst 2026, að fjárhæð allt að kr. 2.250.000,- til samþykktar.
Samþykkt
Heiðs Ösp Kristjánsdóttir fer af fundinum kl.8:25
2. 2602068 - Leigusamningur - Sandvíkursetur
Erindi frá framkvæmdastjóra Háskólafélags Suðurlands, dags. 2. febrúar, þar sem óskað er eftir að framlengja húsaleigusamning vegna starfsemi Háskólafélags Suðurlands í Sandvíkursetri (Fjölheimum).
Bæjarráð tekur vel í erindið. Bæjarstjóra falið að funda með fulltrúum háskólafélagsins og vinna áfram að málinu.
Samþykkt
Ósk um framlengan leigusamning_.pdf
3. 2602241 - Samkeppni um nafn á nýja brú yfir Ölfusá
Lagt er til bæjarráð samþykki að farið sé í nafnasamkeppni á nýju brúna yfir Ölfusá, skv. minnisblaði Braga Bjarnasonar, bæjarstjóra, dags. 23. febrúar 2026.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir tillögum að nafni á nýja brú yfir Ölfusá. Um er að ræða samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Árborgar og Vegagerðarinnar. Áhugasamir geti skilað inn tillögum í gegnum samráðsgáttina „Betri Árborg“. Bæjarráð ásamt fulltrúa Vegagerðarinnar muni síðan fjalla um tillögurnar og leggja til nýtt nafn til afgreiðslu í bæjarstjórn Árborgar.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:01 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica