|
Fundinn sátu: Ari B. Thorarensen formaður, D-lista, Rebekka Guðmundsdóttir nefndarmaður, D-lista, Axel Sigurðsson nefndarmaður, Á-lista, Björgvin Guðni Sigurðsson nefndarmaður, S-lista, Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista, Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi. |
|
Fundargerð ritaði: Ari B Thorarensen, formaður skipulagsnefndar |
|
|
| Almenn afgreiðslumál |
| 1. 2601383 - Merkisteinn I. L166113 - Deiliskipulag - 4 stakstæð hús |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 2. 2601294 - Ljónsstaðir - Ljón 1-3 - Deiliskipulag |
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum.
|
| Samþykkt |
|
|
|
| 3. 2603152 - Eyravegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Að mati skipulagsnefndar er nauðsynlegt að gera grein fyrir áætluðum bílastæðum fyrir gistiheimilið á framlögðum hönnunargögnum auk krafna um birtustig innan íverurýma. Með fyrirvara um að uppfærð gögn berist mælist nefndin til þess að málið verði grenndarkynnt á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Berist engar athugasemdir innan athugasemdafrests grenndarkynningar skal málinu vísað aftur til afgreiðslu byggingarfulltrúa. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2604078 - Eyravegur 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 5. 2604141 - Goðavík 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Fjallað er um heimildir til framkvæmda utan byggingarreits innan skipulagsskilmála deiliskipulags svæðisins þar sem eftirfarandi kemur fram: "Hús skulu í meginatriðum byggð innan byggingarreits en heimilt er að byggja svalir, skyggni, opnar útidyratröppu o.þ.h. utan byggingarreits. Svalir og skyggni geta þannig náð 2 m. út fyrir byggingarreit á langhliðum." Umsóttur sólskáli er 3,2 m út fyrir núverandi hús í 1,8 m fjarlægð frá lóðarmörkum aðliggandi lóðar. Að mati skipulagsnefndar er þörf á að fjalla nánar um heimildir sem taka til sólskála innan greinargerðar deiliskipulags og setja fram fyrirvara um að slíkar framkvæmdir skuli háðar grenndarkynningu og/eða eftir atvikum skriflegu samþykki nágranna. Á grundvelli fordæma fyrri afgreiðslna vegna sólskála í sveitarfélaginu telur nefndin þó að eðlilegt sé að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Samhliða er skipulagsfulltrúa falið að útbúa óverulega breytingu á skilmálum deiliskipulags hverfisins sem rammar betur inn heimildir er varðar byggingu sólskála við íbúðarhús innan hverfa Bjarkar og Jórvíkur sem og öðrum íbúðarhverfum í Árborg. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2604236 - Tryggvatorg og Árbakkasvæðið; Endurskoðun deiliskipulags |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess að tillagan verði samþykkt til kynningar á grundvelli 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Leitað verði sérstaks samráðs við lóðarhafa innan deiliskipulagssvæðisins um efni deiliskipulagsins auk þess sem leitað verði umsagna. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 7. 2301178 - Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins og að brugðist hafi verið við niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um mat á umhverfisáhrifum skipulagsins með fullnægjandi hætti innan tillögunnar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 8. 2503461 - Tjaldstæði í Hellislandi - Deiliskipulag |
| Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða vinnslutillögu fyrir nýtt tjaldsvæði í landi Hellis. Með fyrirvara um uppfærð gögn er skipulagsfulltrúa falið að kynna tillöguna á grundvelli 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010 og leita umsagna til helstu umsagna- og hagsmunaaðila. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 9. 2604235 - Víkurheiði - AT5; Endurskoðun deiliskipulags |
| Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða vinnslutillögu fyrir athafnasvæði í Víkurheiði. Með fyrirvara um uppfærð gögn er skipulagsfulltrúa falið að kynna tillöguna á grundvelli 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010 og leita umsagna til helstu umsagna- og hagsmunaaðila. |
| Samþykkt |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 10. 2604007F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 171 |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 |