Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd - 45

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
28.05.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Ari B. Thorarensen formaður, D-lista,
Axel Sigurðsson nefndarmaður, Á-lista,
Björgvin Guðni Sigurðsson nefndarmaður, S-lista,
Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista,
Óskar Örn Vilbergsson varamaður, D-lista,
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Stella Rúnarsdóttir .
Fundargerð ritaði: Rúnar skipulagsfulltrúi, f.h. Ari B Thorarensen, formaður skipulagsnefndar


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2410015 - Stóra-Hraun L215875 - Deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga tekin til afgreiðslu í kjölfar auglýsingar skv 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010:
Deiliskipulagið tekur til svæðis undir öryggisfangelsi á Stóra Hrauni L215875, nærri Eyrarbakka í Árborg, skv. meðfylgjandi uppdrætti og greinargerð. Stóra-Hraun er landspilda um 250 ha að stærð, sem liggur í og við gatnamót að Eyrarbakka og Stokkseyri, og upp með Eyrarbakkavegi, og er áætlað að nýta hluta landsins undir nýtt öryggisfangelsi. Bygging í fyrsta áfanga mun skapa rými fyrir vistun allt að 100 fanga, með stækkunarmöguleikum upp í 128 fanga.
Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036.
Deiliskipulagstillagan var auglýst í Dagskránni og Lögbirtingarblaði, auk þess sem tillagan var aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar frá 13. mars, með athugasemdafresti til og með 30. apríl 2025.Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, auk athugasemda frá landeigenda Efra-Sels.
Helstu atriði umsagna snéru að fráveitumálum, vatnasvæðum, votlendismálum, fuglavernd, auk nokkurra athugasemda frá landeiganda Efra-Sels.

Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsagnir og athugasemdir, og hefur sett saman í samantektarskjali viðbrögð við umsögnum og athugasemdum, sem mun fylgja með öðrum gögnum tillögunnar og verða send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Nefndin telur að með viðbrögðum í samantektarskjali sé komið til móts við þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, og hefur þeim áherslupunktum sem þyngst vega, verið bætt inn í greinargerð tillögunnar, auk þess sem skráðum fornminjum er bætt inn á skipulagsuppdrátt.
Samþykkt
2. 2410079 - Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting
Kristinn Ragnarsson f.h. Reyrus ehf. leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi. Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð.
Gert er ráð fyrir byggingu á 3 hæða fjölbýlishúsi auk bílakjallara. Fjöldi íbúða allt að 21. Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 17 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt leiksvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif af 3 hæða húsi.

Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt
3. 2505272 - Umsagnarbeiðni - Mjólkursamsalan Selfossi - Núverandi starfsemi og áframhaldandi uppbygging
Skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna tilkynningar til ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Fyrirspurn um matsskyldu er unnin af EFLU. Umsagnarbeiðni er tilkomin vegna áforma Mjólkursamsölunnar (MS) um viðbótaruppbyggingu á lóð félagsins á Selfossi.
Á Austurvegi 65 (L161889 og L234675) á Selfossi er starfsstöð Mjólkursamsölunnar (MS), og hefur verið það frá árinu 1929 þegar Mjólkurbú Flóamanna tók til starfa. Stofnun Mjólkurbús Flóamanna er talin marka upphaf þéttbýlismyndunar á Selfossi. Lóðin Austurvegur 65 er samtals 9,8 ha skv. HMS. Á lóðinni eru þau mannvirki sem þarf til að taka á móti mjólk, vinna hana í hinar ýmsu afurðir, pakka, geyma og afgreiða til dreifingar. Einnig er húsnæði fyrir þjónustu, verkstæði, framleiðslu á gufu, hreinsistöð og lagerhúsnæði. Utandyra eru bílastæði
fyrir starfsfólk, mjólkurbíla og flutningabíla. Lóðin er skilgreind sem iðnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagiÁrborgar 2020-2036.
Í gildi er deiliskipulag fyrir starfsemina, frá árinu 2006. Við gerð þess, og síðari breytinga, virðist ekki hafa verið unnin fyrirspurn um matsskyldu fyrir starfsemina og áframhaldandi uppbyggingu hennar.
Núverandi byggingarmagn er um 16.500 m2 og er fyrirhugað að auka það um 15.000 m2 í áföngum. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er hámarksbyggingarmagn 55.000 m2. Lóð MS og allt umhverfi hennar er meira og minna raskað, enda innan þéttbýlismarka Selfoss og þar hefur um langt árabil verið gert ráð fyrir uppbyggingu.
Stærsta einstaka afurðastöð MS er á Selfossi. Þar starfa um 110 starfsmenn og eru helstu verkefnin mjólkurpökkun, framleiðsla á skyri, jógúrt og margvíslegum sýrðum vörum, auk fjölbreyttra G-vara, smjörs og mjólkurdufts. Mjólkursöfnunarsvæði stöðvarinnar nær frá Snæfellsnesi og Dölunum í vestri að Hornafirði í austri. Árlega tekur hún við um 70 milljónum lítra af mjólk frá um 240 bændum. Á Selfossi er starfrækt viðhaldsdeild, rannsóknarstofa og mjólkureftirlit. Þá er flutningastarfsemi mikilvægur þáttur í rekstri stöðvarinnar, allt frá mjólkursöfnun til flutninga á fullunninni vöru til Reykjavíkur og vörudreifingar um allt land. Frá starfstöð MS á Selfossi fara 8 bílar daglega að sækja mjólk til bænda. Sumir bílar fara tvær ferðir frá starfstöðinni og eru því daglegar ferðir mjólkurbíla til bænda samtals 12 talsins. Þar að auki eru 9 ferðir farnar daglega á 4 bílum á milli Selfoss og Reykjavíkur, og einn bíll fer norður á Akureyri á degi hverjum. Að Austurvegi 65 er verkstæði og smurstöð þar sem fram fer viðhald á bílum og tækjum. Á lóðinni er olíutankur fyrir eldsneyti á bíla fyrirtækisins.

Skipulagsnefnd Árborgar telur að EFLA geri vel grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, og umhverfisáhrifum, auk mótvægisaðgerða, í greinargerð með fyrirspurn.
Þó erfitt sé að gera sér grein fyrir stærð og staðsetningu fyrirhugaðra bygginga á lóðinni, er ljóst að reynt verður að tryggja skjól og ásýnd með trjá- og gróðurbeltum. Nefndin telur ekki ástæðu til að fyrirhugaðar framkvæmdir Mjólkursamsölunnar á Austurvegi 65, kalli á umhverfismat í samræmi við 2. viðauka um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Axel Sigurðsson vék af fundi við afgreiðslu máls.
Samþykkt
Erindi til kynningar
4. 2302166 - Umferðarskipulag Árborg 2023 -
Kristjana Erna Pálsdóttir hjá Verkís, kynnir kynnir niðurstöðu vinnu við gerð umferðarskipulags Árborgar 2025.
Við vinnu umferðaröryggisáætlunar Árborgar m.a. vegna ábendinga sem borist hafa í ábendingargátt Árborgar, voru ákveðin svæði sett í forgang og aðgerðir lagðar fram til bætts umferðaröryggis á þeim svæðum. Markmið aðgerðanna er að bæta öryggi vegfarenda, með áherslu á gangandi og hjólandi vegfarendur og börn sérstaklega. Tilgangur aðgerða er að draga úr hraðakstri og skapa öruggt og aðlaðandi umhverfi fyrir vegfarendur. Til fá betri yfirsýn og greiningu hafa m.a. verið gerðar hljóðvistarmælingar, hraðamælingar og umferðartalning í og við syðsta hluta Selfoss.

Skipulagsnefnd þakkar fyrir góða kynningu.
Til kynningar
Fundargerðir
5. 2502019F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 149
Til kynningar
Til kynningar
Til kynningar
6. 2503008F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 150
Til kynningar
Til kynningar
Til kynningar
7. 2503021F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 151
Til kynningar
Til kynningar
Til kynningar
8. 2504012F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 152
Til kynningar
Til kynningar
Til kynningar
9. 2504021F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 153
Til kynningar
Til kynningar
Til kynningar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica