Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Öldungaráð - 13

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
19.03.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Þórhildur Dröfn Ingvadóttir formaður, D-lista,
Ingvi Már Guðnason nefndarmaður, D-lista,
Ellý Tómasdóttir nefndarmaður, B-lista,
Ómar Torfason fulltrúi eldri borgara á Eyrarbakka,
Margrét Björk Ólafsdóttir fulltrúi HSu,
Sigþrúður Birta Jónsdóttir deildarstjóri, Bylgja Sigmarsdóttir ráðgjafi.
Fundargerð ritaði: Sigþrúður Birta Jónsdóttir, deildarstjóri


Dagskrá: 
Erindi til kynningar
Öldungaráð samþykkir að taka tvö mál á afbrigðum.
1. 2603167 - Umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóð aldraðra
Lögð er fram umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra.
Sótt er um styrk til endurbóta á matsal, eldhúsaðstöðu og rýmum fyrir félagsstarf í félagsmiðstöð eldri borgara í Grænumörk 5. Óskað er eftir umsögn Öldungaráðs

Öldungarráð Árborgar styður umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna endurbóta á aðstöðu í félagsmiðstöð eldri borgara að Grænumörk 5.

Ráðið telur verkefnið mikilvægt fyrir bætta þjónustu, aukið öryggi og eflingu félagsstarfs eldri íbúa í Árborg og hvetur til jákvæðrar afgreiðslu umsóknarinnar.
2. 2603213 - Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa b lista - Íbúðakjarni í Grænumörk
Bæjarfulltrúi B lista, Ellý Tómasdóttir sendir inn fyrirspurn varðandi húsnæðismál eldri borgara á Selfossi. Arnar Steinn húsnæðisfulltrúi er fenginn inn á fundinn til að fara yfir stöðuna.
Öldungaráð Árborgar þakkar húsnæðisfulltrúa fyrir greinargóð og ítarleg svör.
3. 2603214 - Fundur með bæjarstjórn vor 2026
Boðað er til sameiginlegs fundar með bæjarstjórn.
Öldungaráð tekur vel í sameiginlegt fundarboð. Starfsmaður nefndarinnar fylgir eftir undirbúning fundarins með tölvupósti varðandi dagskrárliði.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:52 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica