Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd - 4

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
16.09.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Linda Björk Hilmarsdóttir formaður, D-lista,
Ari B. Thorarensen varaformaður, D-lista,
Esther Ýr Óskarsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Guðrún Rakel Svandísardóttir nefndarmaður, B-lista,
Árni Magnússon nefndarmaður, S-lista,
Ingunn Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Linda Björk Hilmarsdóttir, formaður skipulagsnefndar


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2609007 - Lóðarumsókn - Móstekkur 151
Lögð er fram umsókn frá HS. Hús ehf. vegna úthlutunar á lóð Móstekks 151. Yfirlýsing banka um skilvísi og áreiðanleika liggur fyrir ásamt búsforræðisvottorði.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir að úthluta lóðinni Móstekk 151 til HS. Hús ehf.
Samþykkt
2. 2609006 - Lóðarumsókn - Móstekkur 153
Lögð er fram umsókn frá HS. Hús ehf. vegna úthlutunar á lóð Móstekks 153. Yfirlýsing banka um skilvísi og áreiðanleika liggur fyrir ásamt búsforræðisvottorði.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir að úthluta lóðinni Móstekk 153 til HS. Hús ehf.
Samþykkt
3. 2609005 - Lóðarumsókn - Móstekkur 155
Lögð er fram umsókn frá HS. Hús ehf. vegna úthlutunar á lóð Móstekks 155. Yfirlýsing banka um skilvísi og áreiðanleika liggur fyrir ásamt búsforræðisvottorði.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir að úthluta lóðinni Móstekk 155 til HS. Hús ehf.
Samþykkt
4. 2609004 - Lóðarumsókn - Móstekkur 157
Lögð er fram umsókn frá HS. Hús ehf. vegna úthlutunar á lóð Móstekks 157. Yfirlýsing banka um skilvísi og áreiðanleika liggur fyrir ásamt búsforræðisvottorði.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir að úthluta lóðinni Móstekk 157 til HS. Hús ehf.
Samþykkt
5. 2609109 - Tjald- og skógræktarsvæði AF6 SL1; óveruleg breyting á aðalskipulagi
Samhliða afgreiðslu nýs deilsikipulags sem tekur til tjald- og skógræktarsvæðis í landi Hellis er lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi sem tekur til tilfæringar á landnotkun innan svæðisins. Afþreytingar- og ferðamannasvæði sem liggur næst aðliggjandi íbúðarbyggð er breytt í skógræktarsvæði. Samsvarandi stærð skógræktarsvæðis á norðurhluta svæðisins er breytt í afþreyingar og ferðamannasvæði.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent HMS til samþykktar.
Samþykkt
6. 2606061 - Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hásteinsvegar 30 eftir auglýsingu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma tillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum. Tillagan felur í sér að endurskoðun á forsendum uppbyggingar og notkun á lóðinni. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi lóðarinnar er heimilt að byggja 5 íbúða raðhús ásamt samsvarandi fjölda bílskúra, hámarks nýtingarhlutfall lóðar er skilgreint 0,28. Ekki eru gerðar breytingar á nýtingarhlutfalli lóðar eða fjölda bílastæða. Helstu breytingar sem gerðar eru á skilmálum deiliskipulagsins eru eftirfarandi:
- Heimild fyrir einnar hæðar raðhúsi með 5 íbúðum og 5 stakstæðum bílskúrum fellur niður og í stað verður heimilt að reisa 5 stakstæð tveggja hæða hús sem staðsett eru innan nýrra byggingarreita.
- Heimilt verður að vera með gististarfsemi í flokki I og II á lóðinni samkvæmt reglugerð nr. 1277/2016 í samræmi við aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036.
- Afstöðu og fyrirkomulagi bílastæða verður breytt, en bílastæðafjöldi helst óbreyttur.
- Settir eru fram skilmálar um lágmarks gólfkóta vegna sjávarflóðahættu og koma þeir fram í skilmálum og á skipulagsuppdrætti.
- Settir eru fram skilmálar um arkitektúr, efnisnotkun, lóðarhönnun og frágang innan lóðar

Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir auglýsingu. Að mati nefndarinnar hefur verið brugðist við þeim umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðra gagna þar sem við á. Tengingum við Hásteinsveg er fækkað í takt við umsögn Vegagerðarinnar. Ekki er talin ástæða til að bregðast sérstaklega við ábendingu Heilbrigðiseftirlits þar sem lóðin tengist eftir sem áður fráveitukerfi þorpsins. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda eftir yfirferð HMS á tillögunni.
Samþykkt
7. 2503461 - Tjaldsvæði í Hellislandi - Deiliskipulag
Lögð er fram uppfærð tillaga sem tekur til nýs deiliskipulags tjald- og skógræktarsvæðis í landi Hellis eftir kynningu. Samhliða er lögð fram tillaga að óverulegri breytingu aðalskipulags sem tekur til færslu á landnotkun innan svæðisins. Sú breyting er m.a. til að bregðast við ábendingum íbúa í grennd við svæðið þar sem skógræktarsvæði er skilgreint þar sem áður var gert ráð fyrir tjaldsvæði næst íbúðabyggðinni. Auk hefðbundins tjaldsvæðis sunnan megin á svæðinu gerir skipulagið ráð fyrir að á norður hluta svæðisins verði blandað skógræktar- og útisvistarsvæði sem gæti nýst sem tjaldsvæði í tengslum við stærri viðburði í sveitarfélaginu, s.s. Landsmótum UMFÍ og sumarhátíðum á Selfossi. Á nútíma tjaldsvæðum eru flestir gestir í einhverskonar ferðavögnum. Því er í skipulagi almennings tjaldsvæðisins sýnd möguleg niðurröðun reita fyrir hverskyns vagna, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna o.s.frv og er tekið tillit til leiðbeininga HMS er varðar brunavarnir á tjaldsvæðum í því tilliti. Gert er ráð fyrir tveim þjónustuhúsum á svæðinu, sem þjóni sitthvoru hlutasvæðum. Annarsvegar allt að 50m² þjónustuhús eða gámahýsi við viðburðartjaldsvæði og hins vegar allt að 200m² þjónustuhús við sjálft tjaldsvæðið. Þá er gert ráð fyrir svæði fyrir allt að 15 lítil gistihús að hámarki 20m² hvert.
Athugasemdir bárust við kynningu málsins frá íbúum og hefur verið brugðist við þeim athugasemdum inn í uppfærðri tillögu deiliskipulagsins þar sem við á s.s. með fyrrgreindri færslu á milli skógræktarsvæða og afþreyingar- og ferðamannasvæða .

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan gildandi aðalskipulags sveitarfélagsins og framlagðri óverulegri breytingu á aðalskipulagi sem tekur til tilfærslna á landnotkunarreitum innan skipulagssvæðisins.
Samþykkt
8. 2608210 - Fossnes 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson hönnunarstjóri hönnuður fyrir hönd GT ehf. sækir um leyfi til að setja upp hleðsluhús. Vísað af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa til skipulagsnefndar vegna misræmis við skilmála deiliskipulags.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða umsókn. Áður hefur verið samþykkt uppsetning á sambærilegri aðstöðu á lóðinni og telur nefndin ekki að framlögð umsókn hafi aukin áhrif innan eða utan lóðar umfram núverandi aðstöðu á lóðinni. Mælist nefndin til þess að málið verði afgreitt á grundvelli 3.mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem segir að við útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis getur sveitarstjórn heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Mælist nefndin til þess að við breytingar á deiliskipulagi svæðisins verði horft til þess að skilgreina byggingarreit í kringum aðstöðunna innan lóðar umsækjanda.
Byggingafulltrúa falið að ljúka málinu.
Samþykkt
9. 2506324 - Flatir og Byggðarhorn land 4 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð er fram beiðni um breytingu á deiliskipulagi Flata og byggðarhorns land 4. Í breytingunni felst fjölgun lóða og skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda. Málinu áður frestað á fundi nefndarinnar 10.7.2025. Uppfærð gögn lögð fram.
Að mati skipulagsnefndar er framlögð umsókn ekki í samræmi við stefnumörkun aðalskipulags er varðar L3 landbúnaðarland með rúmum byggingarheimildum þar sem tiltekið er eftirfarandi:
Megin landnýting verður áfram landbúnaður sem atvinnustarfsemi og/eða áhugabúskapur.
- Heimilt er að byggja upp litlar landspildur til fastrar búsetu, landbúnaðarstarfsemi og minniháttar atvinnustarfsemi sem er jafnvel ótengd landbúnaði.
- Lóðir/landspildur eru jafnan 1- 10 ha að stærð, nýtingarhlutfall allt að 0,15. Heildar byggingarmagn á lóðum/landspildum er að hámarki 2.000 m2.
- Óheimilt er að hafa mengandi starfsemi sem veldur öðrum óþægindum, s.s. vegna lyktar, hávaða, óþrifnaðar eða sjónmengunar, né dragi að sér óeðlilega mikla umferð.
- Húsdýrahald og skógrækt er heimil, skv. nánari skilgreiningu í deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd hafnar framkominni umsókn á grundvelli stefnumörkunar aðalskipulags.
Hafnað
10. 2603015 - Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til svæðis I2 innan aðalskiplags Árborgar eftir auglýsingu. Skipulagsreiturinn nær til um 9,9 ha lands sem nær yfir lóð Sláturfélags Suðurlands og svæði fyrir nýjan aðkomuveg. Lóð sláturhúss og afurðastöðvar er 9,6 ha að stærð og er nú þegar byggð að hluta. Sláturfélag Suðurlands hyggst byggja nýtt sláturhús/afurðastöð fyrir stórgripaslátrun, vestan við núverandi byggingar. Núverandi byggingarmagn á iðnaðarlóðinni skv. fasteignaskrá er um 4.565m2 og er gert ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000m2 þar sem um 2000 - 2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Auk nýrra húsa er gert ráð fyrir endurnýjun á núverandi húsnæði sláturhússins.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðar gagna og samantektar málsaðila á umsögnum sem bárust og viðbrögðum við þeim. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt
11. 2601095 - Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga er varðar breytingar á skilmálum aðalskipulags Árborgar 2020-2036, fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Skipulagssvæðið sem aðalskipulagsbreyting nær til er tæpir 6 ha. Megin breytingin fellst í að gerð er ítarlegri grein fyrir í samantektartöflu fyrir Mörk og Grænumörk, fjölgun íbúða á svæðinu, auk fjölda hæða. Samhliða breytingu aðalskipulags verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið.Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 22.6.2026 með fyrirvara um samþykki HMS. Lögð er fram afgreiðsla HMS þar sem gerðar eru athugasemdir við tillöguna og auglýsingu hennar. Samhliða eru lögð fram uppfærðum gögnum í takt við athugasemdir HMS.
Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn Árborgar að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Grænumarkar verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á grundvelli uppfærðra gagna og viðbragða vinnsluaðila skipulagsbreytingar sem lögð er fram samhliða samþykkt tillögunnar. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.

Samþykkt samhljóða.
Áheyrnarfulltrúi Ingunn Guðmundsdóttir áheyrarfulltrúi Viðreisnar leggur fram sérbókun:
Ég legg til að afgreiðslu tillögunnar verði frestað og henni vísað til endurskoðunar aðalskipulags sem þegar hefur verið ákveðið að fara í. Þá verði fjallað um deiliskipulag á reitnum samhliða eins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leggur til í athugasemdum við tillöguna. Enn fremur er mikilvægt að samhliða umfjöllun um breytingartillöguna sé fjallað um aðliggjandi lóðir og umferðarskipulag þ.e. Heilbrigðisstofnunar, lögreglu, sjúkraflutninga, slökkviliðs og björgunarsveitar.
Samþykkt
12. 2606333 - Suðurhólar - Lóð undir fjarskiptamastur
Lögð er fram eftir grenndarkynningu beiðni frá Íslandsturnum er varðar heimild fyrir lóð og uppsetningu á fjarskiptamastri við Suðurhóla við núverandi hundasleppisvæði sveitarfélagsins og spennistöð RARIK var lögð fram á fundi skipulagsnefndar þann 8.7.2026 þar sem beiðnin var samþykkt til grenndarkynningar. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu málsins og er málið því lagt fyrir nefndina að nýju.
Vegna þeirra athugasemda sem bárust við fyrirhugaða uppsetningu fjarskiptamasturs að Suðurhólum bendir nefndin á að helstu forsendur vegna uppsetningar slíkra senda er dreifing merkisins sem frá þeim kemur. Þ.e. með nýrri tækni er þörf á uppsetningu fleiri senda til að tryggja fullnægjandi dreifingu merkisins og að viðeigandi fjöldi notenda geti nýtt þann gagnamagnshraða sem í boði er. Tilgangur er því m.a. að fleiri notendur geti notið þess gagnamagnshraða sem 5G sendar bjóða uppá. Það næst ekki með því að raða fleiri sendum á sama stað samkvæmt þeim upplýsingum sem sveitarfélagið hefur frá umsækjanda. Tilgangurinn er fyrst og fremst að skapa gott farsíma og gagnamagnssamband fyrir íbúa sveitarfélagsins með þéttara neti senda. Í framtíðar deiliskipulagsáætlunum þeirra svæða sem vísað er til innan athugasemdar landeigenda aðliggjandi lands má ætla að þörf verði á að skilgreina svæði fyrir slíka innviði ekki síður en lóðir fyrir spennistöðvar og önnur veitumannvirki. Ætla má að ef hærri byggingar verði innan þessara íbúðasvæða verði þau einnig nýtt fyrir senda ef það tryggir jafnari dreifingu fjarskiptamerkja. Með fyrirhugaðri staðsetningu mastursins verða girðingar og/eða aðliggjandi land ekki fyrir skerðingu. Við framtíðar skipulag íbúðarsvæða ÍB43 og ÍB44 þarf að taka mið af þeim kröfum sem gerðar eru til fjarskipa nú og til framtíðar og má ætla að kröfur verði um gott fjarskiptasamband innan þessara íbúðarbyggða verði ekki minni til framtíðar en er í dag.
Mælist nefndin til þess að kallað verði til samráð með landeiganda Dísastaða um hugsanlegar staðsetningar á fjarskiptasendum innan framtíðar íbúðasvæða landeiganda. Komi fram álitlegri staðsetningar fyrir fjarskiptainnviði en umsótt staðsetning verði það tekið til nánari skoðunar að hálfu sveitarfélagsins. Málinu frestað.

Frestað
13. 2606341 - Tjarnarbyggð - Lóð undir fjarskiptamastur
Lögð er fram eftir grenndarkynningu beiðni frá Íslandsturnum er varðar heimild fyrir lóð og uppsetningu á fjarskiptamastri í Tjarnarbyggð. Tillagan var lögð fram á fundi skipulagsnefndar þann 8.7.2026 þar sem beiðnin var samþykkt til grenndarkynningar. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu málsins og er málið því lagt fyrir nefndina að nýju.
Vegna þeirra athugasemda sem bárust við fyrirhugaða uppsetningu fjarskiptamastur í Tjarnarbyggð bendir nefndin á að helstu forsendur vegna uppsetningar slíkra senda er dreifing merkisins sem frá þeim kemur. Þ.e. með nýrri tækni er þörf á uppsetningu fleiri senda til að tryggja fullnægjandi dreifingu merkisins og að viðeigandi fjöldi notenda geti nýtt þann gagnamagnshraða sem í boði er. Tilgangur er því m.a. að fleiri notendur geti notið þess gagnamagnshraða sem 5G sendar bjóða uppá. Tilgangurinn er fyrst og fremst að skapa gott farsíma og gagnamagnssamband fyrir íbúa sveitarfélagsins með þéttara neti senda. Ljóst er að mati nefndarinnar að um óveruleg frávik er að ræða gagnvart hagsmunum nágranna sem skerðast óverulega hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn þar sem mastrið er í tæplega 300 metra fjarlægð frá íbúðarhúsi að Suðurgötu 3 og rúmarlega 200 metra fjarlægð frá byggingarreit Suðurgötu 1. Ljóst er að til frekari uppyggingar á fjarskiptamöstur gæti komið til framtíðar á þeim svæðum sem ekki hefur verið byggt á nú þegar. Eins og fyrr segir minnkar það þó ekki þörf núverandi byggðar á fullnægjandi fjarskiptum. Að mati skipulagsnefndar eru framlagðar athugasemdir ekki þess eðlis að ástæða sé til að hafna erindinu. Mælist nefndin til þess að samþykkt verði heimild fyrir uppsetningu fjarskiptamastur á viðkomandi svæði. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ljúka málinu.
Samþykkt
Fundargerðir
14. 2608016F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 178
Lögð er fram til kynningar fundargerð 178 fundar byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica