| Bæjarráð - 167 |
Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, 16.04.2026 og hófst hann kl. 08:10 |
|
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista, Bragi Bjarnason bæjarstjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2510393 - Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar |
Bæjarráð fer yfir tillögu að fulltrúum úr bæjarstjórn sem myndu skipa hverfisráðin á Eyrabakka, Stokkseyri og Sandvíkurhreppi. Tveir bæjarfulltrúar sitja í hverju ráði og er lagt til að Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista verði fulltrúar í hverfisráði Eyrarbakka, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista í hverfisráði Stokkseyrar og Kjartan Björnsson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista í hverfisráði Sandvíkurhrepps. Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista leggur fram eftirfarandi bókun: Undirrituð fagnar þeim mikla áhuga sem kom fram á fundum hverfisráðanna þriggja. Það er afar bagalegt að ekki skuli hafa verið starfandi hverfisráð allt kjörtímabilið sem hefur gert það að verkum að tækifæri til þess að eiga mikilvægt samráð við íbúa um málefni nærsamfélagsins hafa glatast.
Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi S-lista
|
| Samþykkt |
| Fulltrúar í hverfisráðum 2026.pdf |
|
|
|
| 2. 2510393 - Tillaga um breytingu á nafni Hverfisráða Árborgar |
| Bæjarráð sendir hugmyndina að breytingu á nafninu hverfisráð í íbúaráð til umsagnar hjá Hverfisráði Eyrarbakka, Hverfisráði Stokkseyrar og Hverfisráði Sandvíkurhrepps. Þegar umsagnir berast verður tekin afstaða til hugmyndarinnar á fundi bæjarráðs. |
| Samþykkt |
|
|
|
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn kl.8:26
|
| 3. 2510456 - Ársreikningur Árborgar 2025 |
| Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn og fer yfir vinnu vegna ársreiknings 2025. |
|
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri fer af fundinum kl.8:41
|
|
|
| 4. 2601290 - Áskorun - skólahreystivöllur við Stekkjaskóla |
| Bæjarráð þakkar skólaráði ítrekun á erindinu. Fram kom að málið væri til skoðunar á mannvirkja- og umhverfissviði líkt og fram kom í bókun bæjarráðs 29. janúar sl. Gert er ráð fyrir að hugmyndin verði tekin til umræðu í fjárhagsáætlunarvinnu næsta árs. |
| Samþykkt |
| 2026_03_23_Bæjarráð_Bréf frá skólaráði Stekkjaskóla.pdf |
|
|
|
| 5. 2107030 - Samkomulag um Austurbyggð II |
| Afgreiðslu málsins frestað. |
| Frestað |
|
|
|
| 6. 2604062 - Beiðni um heimild til að halda þríþrautakeppni á Selfoss 2026 |
| Bæjarráð samþykkir að veita Þríþrautarsambandi Íslands afnot af Sundhöll Selfoss vegna þríþrautarkeppni á Selfossi þann 9. ágúst nk. Um er að ræða aðstöðu í útiklefum fyrir keppendur og aðgang í Sundhöll í keppninni. Þríþrautarsambandinu er bent á að senda þarf beiðni á Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar vegna afnota af landi og götum sveitarfélagsins. |
| Samþykkt |
| Tölvupóstur - Umsókn um heimild til að halda þríþrautakeppni á Selfossi sunnudaginn 9. ágúst 2026 kl 900.pdf |
|
|
|
| 7. 1707234 - Hönnun Sigtúnsgarðs |
| Farið yfir stöðu verkefnisins. Gert er ráð fyrir fundi með íbúum af nærsvæði á næstu vikum til að kynna tillögurnar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 8. 2604100 - Þjónustusamningur við Ungmennafélag Selfoss 2026-2030 |
| Bæjarráð samþykkir samninginn. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins, ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir styrknum í fjárhagsáætlun 2026. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 9. 2604035 - Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands - frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla - 157. löggjafarþing, mál 265, þskj. 949 |
| Lagt fram til kynningar. |
| Ályktun samþykkt á fulltrúafundi 2026.pdf |
|
|
|
| 10. 2206157 - Fundartími bæjarráðs kjörtímabilið 2022-2026 |
| Bæjarráð samþykkir tillöguna. |
| Samþykkt |
|
|
|
|
| Fundargerðir til kynningar |
| 11. 2602155 - Fundargerðir stjórnar Bergrisans bs 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
| 92. stjórnarfundur Bergrisans.pdf |
|
|
|
| 12. 2603262 - Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
| 35 stjórn 070426 Undirritað.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:07 |
|