Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 105

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
16.11.2022 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2211035 - Byggðarhorn Búgarður 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Örn Sigurðsson sækir um leyfi til að staðsetja gestahús á lóð sinni. Helstu stærðir eru 40,5 m2 og 116,5 m3.
Skv. nýsamþykktri deiliskipulagsbreytingu má byggja eitt íbúðarhús og eitt útihús á lóðinni.

Umsækjandi (eigandi - einstaklingur/ fyrirtæki) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Byggðgarhorn búgarður 19 gestahús A móttðaluppdrættir.pdf
2. 2210450 - Túngata 64 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Gestur Ólafsson hönnuður fyrir hönd Ragnars K. Gestssonar sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu. Helstu stærðir eru; 122,0m2 og 454,0m3
Fyrirspurn um byggingu bílgeymslu var rædd á 57. fundi skipulags- og byggingarnefndar 02.12.2020 og var þá tekið jákvætt í erindið. Unnið er að gerð lóðarblaða.

Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Túngata 64 A mótt 02.11.2022.pdf
3. 2211076 - Austurvegur 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Akurhóla ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum utanhúss.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Fyrir liggur samþykki meðeigenda.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að gert verði grein fyrir breytingum á grunnmynd. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Austurvegur 38 A mótt 04.11.2022.pdf
Samþykki meðeigenda 100_Austurvegur 38_með undirritun.pdf
4. 21043598 - Marbakki - Byggingaráform, aðaluppdrættir
Michael Blikdal Erichsen hönnunarstjóri sendir inn leiðrétta aðaluppdrætti.

Byggingaráform voru samþykkt 10.11.2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir breytta aðaluppdrætti með smávægilegum athugasemdum.
Marbakki A mótt 29.07.2022.pdf
5. 2108173 - Smáratún 1 - Breyttir aðaluppdrættir
Jódís Ásta Gísladóttir f.h. hönnunarstjóra sendir inn uppfærða aðaluppdrætti þar sem búið er að bæta við svölum á suðurhlið hússins.
Byggingarleyfi var gefið út 21.06.2022 að undangenginni grenndarkynningu þar sem 12 athugasemdir bárust sem m.a. sneru að útliti hússins.
Byggingarfulltrúi telur að breytingarnar geti ekki talist óverulegar og vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar sbr. byggingarreglugerð gr. 2.3.4.
Smáratún 1 A mótt 28.10.2022 A.pdf
6. 2209027 - Larsenstræti 2 - Breyttir aðaluppdrættir
Byggingaráform voru samþykkt 07.09.2022 með fyrirvara um samþykkt deiliskipulagsbreytingar.
Hönnuður leggur fyrir uppfærða aðaluppdrætti mótt. 15.11.2022.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 1. mgr. 2.4.4 gr. byggingarreglugerðar.
Breyttir aðaluppdrættir eru samþykktir. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir hafa verið staðfestir af byggingarfulltrúa og hönnuði/hönnunarstjóra.
- Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á framkvæmdinni


Larsenstræti 2 A mótt 15.11.2022.pdf
7. 2209306 - Fossnes 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Byggingaráform voru samþykkt 19.10.2022
Hönnunarstjóri sendir inn uppfærðan aðaluppdrátt mótt. 20.10.2022.

Breyttir aðaluppdrættir eru samþykktir. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir hafa verið staðfestir af byggingarfulltrúa og hönnuði/hönnunarstjóra.
- Byggingarstjóri Iðnmeistarar hafa staðfest ábyrgð sína á framkvæmdinni
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
Fossnes 14 A mótt 20.10.2022.pdf
8. 2211204 - Laxabakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson hönnuður fyrir hönd Fossbygg ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 207,5 m2 og 541,3 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Laxabakki 9 A mótt 14.11.2022.pdf
9. 2210393 - Nauthagi 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bjarki Guðmundsson hönnuður fyrir hönd Bergrisans bs. sækir um leyfi til að hefja jarðvinnu.
Samþykkt að gefa út takmarkað byggingarleyfi fyrir gröft og fyllingu með eftirfarandi skilyrðum:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
Nauthagi 2 A mótt 10.11.2022.pdf
10. 2211107 - Byggðarhorn 32 - Umsókn um stöðuleyfi
Ottó Sturluson sækir um endurnýjun stöðuleyfis fyrir gáma sem eru staðsettir á hesthúsgrunni og notaðir sem tímabundið sem skjól fyrir hross.
Sótt er um leyfi fyrir tímabilið 01.06.2022-31.12.2022.


Útrunnið stöðuleyfi gilti fyrir tímabilið 01.06.2021-31.05.2022 og áður 01.01.2021-01.06.2021.
Umsókn um stöðuleyfi.pdf
11. 2211154 - Byggðarhorn 44 - Umsókn um stöðuleyfi
Jónas Ingi Jónasson sækir um framlengingu á stöðuleyfi fyrir 2 gáma að Byggðarhorni 44 vegna byggingarframkvæmda. Sótt er um leyfi fyrir tímabilið 09.11.2022-09.11.2023
Áður hefur verið veitt stöðuleyfi fyrir 40 ft. gám fyrir tímabilið 15.10.2021-15.10.2022.
Samþykkt að veita stöðuleyfi fyrir tímabilið 09.11.2022-09.11.2023 sbr. byggingarreglugerð gr. 2.6.1 b.
12. 2211238 - Úthagi 9 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Rakel B. Rúnarsdóttir óskar eftir samþykki Sveitarfélagsins Árborgar vegna skjólgirðingar á lóðamörkum við Nátthaga.
Vísað til samráðsfundar með Mannvirkja- og umhverfissviði.
13. 2211056 - Víkurheiði 11A - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Daga, þvottahús og ræstingaþjónustu
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Daga Víkurheiði 11A.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar sbr. útgefið byggingarleyfi og að húsið hefur staðist lokaúttekt

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Umsókn um starfsleyfi - almennt.pdf
14. 2211057 - Austurvegur 4 Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Heilsulind nudd og meðferðarstofa
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Heilsulind nudd og meðferðarstofu í Miðgarði, Austurvegi 4
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og að húsið er skráð fullgert.
Uppdrættir af rýminu og staðsetning í húsinu liggja ekki fyrir.

15. 2211058 - Austurvegur 10 - Umsagnarbeiðni, starfsleyfi fyrir Vonarland Heilsunuddstofu
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Heilsunuddstofu Austurvegi 10.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og að húsið er skráð fullgert skrifstofuhúsnæði.
Ekki hefur borist umsókn um breytta notkun.

Byggingarfulltrúi gerir athugasemdir við útgáfu starfsleyfis þar sem ekki hefur verið sótt um breytta notkun og uppdrættir liggja ekki fyrir.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica