Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulags og byggingarnefnd - 59

Haldinn í gegnum fjarfundarbúnað,
13.01.2021 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sigurjón Vídalín Guðmundsson formaður, Á-lista,
Ari Már Ólafsson nefndarmaður, M-lista,
Kristbjörn Hjalti Tómasson nefndarmaður, S-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Magnús Gíslason nefndarmaður, D-lista,
Sigurður Andrés Þorvarðarson skipulagsfulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Ásdís Styrmisdóttir starfsmaður.
Fundargerð ritaði: Sigurður Andrés Þorvarðarson, Skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2011117 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi - Fagri Tangi
Á fundi nefndarinnar þann 18.11.2020 var ákveðið að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum. Engar athugasemdir bárust á kynningartímanum.
Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt.
Samþykkt
2. 2009506 - Grenndarkynning vegna Smártún 1
Tillagan felst í því að afmarka byggingarreit, skilgreina nýtingarhlutfall, hámarksfjölda hæða, ásamt því að skilgreina aðkomu að lóð. Erindið hefur verið grenndarkynnt og athugasemdir borist.
Tillagan lögð í atkvæðagreiðslu og er samþykkt með 3 atkvæðum gegn 2. Fulltrúar D-lista greiða atkvæði gegn tillögunni vegna fjölda athugasemda sem borist hafa. Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt.
Samþykkt
3. 2006096 - Fyrirspurn um viðbyggingu - Nauthólar 26
Á fundi nefndarinnar þann 18.11.2020 var ákveðið að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum. Engar athugasemdir bárust á kynningartímanum.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.
Samþykkt
4. 2101098 - Deiliskipulagsbreyting - Eyravegur 26-30
Oddur Hermannsson f.h. lóðarhafa óskar eftir nýju deiliskipulagi. Lögð er fram lýsing á verkefninu.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur vel í erindið og leggur til við bæjarstjórn að skipulags- og matslýsingin verði auglýst.
Samþykkt
5. 2101117 - Úthlutun lóðar -Norðurhólar 5
Umsóknir bárust um lóðina Norðurhólar 5 Selfossi.
Dregið var úr innsendum umsóknum. Útdreginn umsækjandi er Eðalbyggingar ehf. Til vara er dreginn Hannes Þór ehf. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til Eðalbygginga ehf.
Fundargerð
6. 2012005F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56
6.1. 2012148 - Túngata 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Aðal byggingarstjórinn ehf sækir um byggingaráform / byggingarleyfi fyrir parhúsi byggt úr timbri.

Helstu stærðir 246,6m² 1112,4m³
Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að hæðarkóta verði bætt við og snið lagfærð.





Niðurstaða þessa fundar
6.2. 2012091 - Norðurleið 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
NOR15 sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir stálgrindarhúsi á Norðurleið 15. Tvö iðnaðarbil sem verða notuð undir léttan iðnað.
Helstu stærðir 494,4m² 2952,5m³
Framkvæmd samræmist ekki ákvæðum í gr.5.3 og 5.5. greinargerð deiliskipulags.
Erindinu hafnað

Niðurstaða þessa fundar
6.3. 2010292 - Gagnheiði 23 - Umsókn um breytingu á útliti
Agnar Pétursson sækir um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði að innan og bæta við útkeyrsluhurð.
Minniháttar framkvæmd sem er tilkynningarskyld samanber gr. 2.3.5. í byggingareglugerð. Ekki eru gerðar athugasemdir við byggingaáform.

Niðurstaða þessa fundar
6.4. 2011215 - Hásteinsvegur Sæhvoll - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Valdimar Erlingsson sækir um byggingaráform / byggingarleyfi fyrir bílskúr við íbúðarhús.
Helstu stærðir 60m² 1112,4m³
Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að byggingarlýsing verði uppfærð samanber gr.4.3.9. í byggingarreglugerð.


Niðurstaða þessa fundar
6.5. 1905434 - Austurvegur 39 - Umsókn um byggingarleyfi, svalalokun
Málið var áður á dagskrá á 21. fundi.
Kristinn Ragnarsson hönnunarstjóri f.h. húsfélagsins sækir um leyfi til að koma fyrir svalalokunum á 8 íbúðir á 2. og 3. hæð hússins. Fyrir liggja uppdrættir KRark og bréf eigenda þar sem staðfest er að á húsfundi 26. september 2018 hafi framkvæmdin verið samþykkt.
Samþykkt er að byggingarleyfi verði veitt.

Niðurstaða þessa fundar
6.6. 2101027 - Byggingarleyfisumsókn - Larsenstræti 4
Frekari gögn vantar, byggingarfulltrúa falið að hafa samband við umsækjanda.
Afgreiðslu frestað.

Niðurstaða þessa fundar
6.7. 2001065 - Tryggvagata 32 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um starfsleyfi
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna starfsleyfis við Tryggvagötu 32.
Áður á fundi 13.01.2020.
Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu starfsleyfis þar sem starfsemin samræmist ekki skipulagi, samþykki meðeigenda liggur ekki fyrir og önnur fyrirliggjandi gögn eru ófullnægjandi.

Niðurstaða þessa fundar
6.8. 2012180 - Byggðarhorn 32 - Umsókn um stöðuleyfi
Ottó Sturluson sækir um stöðuleyfi vegna gáma sem hann ætlar sér að nota tímabundið sem skjól fyrir hross á hesthúsgrunni.
Samþykkt er að veita stöðuleyfi frá 01.01.2021 til 01.06.2021

Niðurstaða þessa fundar
6.9. 2012182 - Austurvegur 23 - Umsókn um stöðuleyfi vegna flugeldasölu
Hjálparsveitin Tintron sækir eftir stöðuleyfi fyrir 2 gáma vegna flugeldasölu.
Byggingarfulltrúi tilkynnir fundi að hann hefur gefið út stöðuleyfi fyrir hjálparsveitina frá 23.12.2020 - 08.01.2021

Niðurstaða þessa fundar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:20 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica