Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Fræðslu- og frístundanefnd - 1 - 2026

Haldinn á 3. hæð Ráðhúss,
10.06.2026 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Brynhildur Jónsdóttir formaður, D-lista,
Sigríður Ósk Harðardóttir nefndarmaður, D-lista,
Gísli Rúnar Gíslason nefndarmaður, D-lista,
Arnar Freyr Ólafsson nefndarmaður, B-lista,
Elísabet Davíðsdóttir nefndarmaður, S-lista,
Þorsteinn Haukur Harðarson áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Hilmar Björgvinsson fulltrúi skólastjóra,
Kristrún Hafliðadóttir fulltrúi leikskólastjóra,
Áslaug Halla Elvarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskóla,
Rakel Pálmadóttir fulltrúi kennara,
Birna Aðalh. Árdal Birgisdóttir fulltrúi foreldra leikskóla,
Oddný Guðríður Pálmadóttir fulltrúi leikskólakennara,
Eiríkur Sigmarsson fulltrúi frístundaþjónustu,
Margrét Björk Brynhildardóttir deildarstjóri, Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson deildarstjóri.
Fundargerð ritaði: Margrét Björk Brynhildardóttir, deildarstjóri skólaþjónustu


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2302185 - Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar
Lögð eru fram drög að erindisbréfi nefndarinnar.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir erindisbréfið.
2. 2606110 - Þagnarskyldu- og trúnaðaryfirlýsing
Þagnarskyldu- og trúnaðaryfirlýsing fyrir kjörna fulltrúa og nefndarmenn hjá Sveitarfélaginu Árborg lögð fyrir til undirritunar. Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Sveitarfélaginu Árborg lagðar fram til kynningar.
Kjörnir fulltrúar og nefndarmenn skrifuðu undir þagnarskyldu- og trúnaðaryfirlýsingu.
3. 2605193 - Kosning í embætti og nefndir 2026-2030
Kosning varaformanns fræðslu- og frístundanefndar.
Formaður leggur til að Gísli Rúnar Gíslason verði varaformaður fræðslu- og frístundanefndar. Samþykkt samhljóða.
4. 2603235 - Frístundadagatöl 2026-2027
Uppfærð frístundadagatöl frístundaheimila Árborgar 2026-2027 lögð fram til staðfestinar vegna nauðsynlegra breytinga sem gera þurfti á dagatölunum skv. meðfylgjandi minnisblaði.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir uppfærð frístundadagatöl frístundaheimila Árborgar fyrir skólaárið 2026-2027.
Frístundadagatal Bifröst 2026-2027.pdf
Frístundadagatal Bjarkarból 2026-2027.pdf
Frístundadagatal Hólar 2026-2027.pdf
Frístundadagatal Stjörnusteinar 2026-2027.pdf
5. 2603186 - Skóladagatal 2026-2027
Erindi frá trúnaðarmönnum grunnskólanna í Árborg varðandi tvöfalda daga.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar erindinu til efnislegrar og faglegrar umræðu á fjölskyldusviði. Óskað er eftir kostnaðarmati og mati á áhrifum þessarar aðgerðar á gæði, upplifun og öryggi nemenda og starfsfólks. Málið verður tekið upp aftur þegar minnisblað liggur fyrir eigi síðar en í lok nóvember 2026.
6. 2510092 - Öruggara Suðurland - úti og bæjarhátíðir
Tillaga frá 169. fundi bæjarráðs frá 30. apríl sl.
Öruggara Suðurland - úti og bæjarhátíðir
Erindi frá vinnuhópi um Öruggara Suðurland, dags. 24. apríl,
þar sem óskað er eftir umsögn um drög að skýrslu um úti- og bæjarhátíðir á Suðurlandi. Umsagnafrestur er til 7. maí nk.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð fagnar því að komin sé út skýrsla um skipulag og framkvæmd með tillögum að forvörnum.

Bæjarráð vísar skýrslunni til umræðu í fræðslu- og frístundanefnd, velferðarnefnd, ungmennaráði og til úrvinnslu á fagsviðum sveitarfélagsins.

Fræðslu- og frístundanefnd fagnar þeirri vinnu sem fór fram á vegum spretthóps Öruggara Suðurlands og hvetur Sveitarfélagið Árborg og viðburðarhaldara til að horfa til þeirra aðgerða sem bent er á í skýrslunni við undirbúning hátíðarhalda.
7. 2606091 - Faglegur ráðgjafi frístundarheimila
Minnisblað um reynslu af tímabundinni stöðu faglegs ráðgjafa frístundaheimila lagt fram til afreiðslu.
Fræðslu- og frístundanefnd tekur jákvætt í erindið og vísar til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.
8. 2606089 - Minnisblað vegna LOGOS lestrargreiningarforrits
Minnisblað frá læsisráði Vallaskóla varðandi LOGOS lestragreiningarforritið.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar læsisráði Vallaskóla fyrir erindið og vísar því til faglegrar umfjöllunar og úrvinnslu á fjölskyldusviði.
9. 2606102 - Ósk um heimild til breytinga á stundatöflu Vallaskóla skólaárið 2026-2027
Erindi frá skólastjóra Vallaskóla þar sem óskað er eftir heimild til breytinga á tímaás stundastöflu Vallaskóla skólaárið 2026-2027.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fyrirhugaðar breytingar á stundatöflu eldri deildar Vallaskóla skólaárið 2026-2027 að því gefnu að ekki komi til kostnaðarauka.
14. 2606103 - Sumarfrí fræðslu- og frístundanefndar
Tillaga um sumarfrí fræðslu- og frístundanefndar lagt fyrir til staðfestingar.
Formaður leggur til að næsti fundur fræðslu- og frístundanefndar verði miðvikudaginn 26. ágúst 2026.

Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir tillöguna.
Erindi til kynningar
10. 2606027 - Beiðni foreldra barna í 7. KR í Vallaskóla um hertar símareglur á unglingastigi
Beiðni foreldra í 7. KR í Vallaskóla um hertar símareglur á unglingastigi. Erindið var sent skólastjóra Vallaskóla 1. júní sl. til afgreiðslu og til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar þessu erindi frá foreldrum og leggur til að símareglur verði samræmdar í skólum sveitarfélagins. Eins leggur nefndin áherslu á að nemendur verði hafðir með í ráðum við gerð símareglna.
11. 2006052 - Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli
Forsögn að þriðja áfanga Stekkjarskóla lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
12. 2604208 - Endurmenntunarsjóður grunnskóla 2026-2027
Styrkur úr endurmenntunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2026-2027. Margrét Björk Brynhildardóttir, deildarstjóri skólaþjónustu kynnir.
Lagt fram til kynningar.
13. 2606114 - Fræðsludagur fjölskyldusviðs 2026
Dagskrá fræðsludags fjölskyldusviðs sem haldinn verður 20. ágúst nk. lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica