| Skipulagsnefnd - 2 |
Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi, 08.07.2026 og hófst hann kl. 08:15 |
|
Fundinn sátu: Linda Björk Hilmarsdóttir formaður, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson varamaður, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Guðrún Rakel Svandísardóttir nefndarmaður, B-lista, Árni Magnússon nefndarmaður, S-lista, Guðný Björk Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi. |
|
Fundargerð ritaði: Linda Björk Hilmarsdóttir, formaður skipulagsnefndar |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn afgreiðslumál |
| 1. 2607023 - Fundur skipulagsnefndar; Breytt fundarnúmer |
| Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að fundarnúmer fyrsta fundar nefndarinnar dags.19.6.2026 verði 1 í stað 62. |
|
|
|
| 2. 2503461 - Tjaldsvæði í Hellislandi - Deiliskipulag |
| Skipulagsnefnd mælist til þess að leitast verði við að minnka áhrif tillögunnar á aðliggjandi íbúðarbyggð með tilfærslu svæða innan hennar og endurhönnun á göngutenginum með það að sjónarmiði að megin umferð gangandi og hjólandi vegfarenda til og frá svæðinu verði ekki beint inn í íbúðabyggðina. Hins vegar bendir nefndin á að svæðið sem um ræðir verður einnig útvistarsvæði með góða tengingu við Hellisskóg, er það því mat nefndarinnar að núverandi göngutengin við Miðtún, sem einnig er skilgreind á aðalskipulagi, sé tenging sem henti vel sem tenging fyrir íbúa hverfisins inn á útvistarsvæðið og mælist til þess að hún verði áfram skilgreind innan skipulagstillögunnar óbreytt. Jafnframt leggur nefndin til þess að gerð verði óveruleg breyting á aðalskipulagi þar sem makaskipti verði gerð á afþreyingar og ferðarmannasvæði næst íbúðabyggðinni og skógræktarsvæðis norðan hennar. Samhliða leggur nefndin til að skoðuð verði hugsanleg tenging svæðisins til suðurs og skilgreining nýs hringtorgs við Suðurlandsveg á því svæði til að bæta umferðarflæði. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi vinnslu tillögunnar í samráði við vinnsluaðila hennar. |
| Til kynningar |
|
|
|
| 3. 2606017 - Umferðaröryggisaðgerðir 2026 - Gangbrautarljós á Austurvegi fyrir framan ráðhúsið |
| Skipulagsnefnd tekur jákvætt í framlagaðar hugmyndir um gangbrautarljós við gönguþverun móts við Krónuna og Ráðhús Árborgar. Sé horft til öryggissjónarmiða fyrir gangandi vegfarendur er ljóst að þörf er á stýringu sem tryggir með fullnægjandi hætti öryggi við þverun á götunni þar sem töluverður fjöldi gangandi og hjólandi vegfarenda þvera Austurveg dag hvern á þessum kafla. Nefndin leggur áherslu á að vandað verði til verka gagnvart stýringu slíkra ljósa til að lágmarka áhrif á umferðarflæði um Austurveg og að núverandi umferð dreyfist ekki um of á aðrar götur bæjarins. Er þá sérstaklega horft til þungaumferðar. Verði niðurstaðan sú að aukning verði á þungaumferð t.d. um Suðurhóla telur nefndin skynsamlegt að taka til athugunar að setja þungatakmarkanir á ákveðnar götur sem slík umferð gæti leitað á. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2601204 - Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting |
| Að mati skipulagsnefndar hefur verið brugðist við athugasemdum og umsögnum sem bárust vegna tillögunnar með fullnægjandi hætti innan framlagðrar breytingartillögu og samantektar vegna umsagna og athugasemda. Fallið hefur verið frá hækkun hámarkshæða bygginga, ekki er gengið á opin græn svæði auk þess sem fallið hefur verið frá niðurfellingu gestastæða við fjölbýlishús þótt svo að viðmið um gestastæði hafi verið minnkuð úr 1 stæði á hverjar 4 íbúðir í 1 stæði á hverjar 5 íbúðir. Þrátt fyrir fjölgun íbúða innan viðkomandi lóða helst heildarbyggingarmagn óbreytt. Breytingin felur fyrst og fremst í sér fleiri og smærri íbúðir en ekki sambærilega aukningu íbúafjölda. Skipulagsnefnd bendir á að meirihluti hverfisins er óbyggður enn sem komið er. Aukning umferðar um hverfið er því óhjákvæmileg til framtíðar þrátt fyrir minnkun og fjölgun íbúða á viðkomandi lóðum. í fyrri afgreiðslum nefndarinnar hafa auk þess komið fram athugasemdir við að í hönnun húsa á reitunum verði sett fram skilyrði um mismunandi stærðir íbúða til að koma í veg fyrir einhæft búsetumynstur. Mælist skipulagsnefnd til þess við bæjarstjórn Árborgar að tillagan verð samþykkt eftir auglýsingu og taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þeim sem athugasemdir gerðu við tillöguna verði kynnt niðurstaða sveitarfélagsins, auk þess sem niðurstaða bæjarstjórnar/bæjarráðs verði auglýst skv. 3.mg. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 5. 2606341 - Tjarnarbyggð - Lóð undir fjarskiptamastur |
| Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að Íslandsturnum Sendastaðir ehf verði úthlutað svæði fyrir uppsetningu fjarskiptamasturs á umræddu svæði innan Tjarnarbyggðar. Mælist nefndin til þess að beiðnin verði send til yfirferðar hjá hverfisráði Sandvíkurhrepps auk þess sem málið verði tekið til afgreiðslu innan samráðfundar mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar. Komi ekki fram athugasemdir við framkvæmdina mælist nefndin til þess að tillagan verði grenndarkynnt næstu lóðarhöfum. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ljúka málinu á grundvelli heimilda 3.mgr. 43. gr. skipulagslaga í samráði við umsækjanda. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2606333 - Suðurhólar - Lóð undir fjarskiptamastur |
| Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að Íslandsturnum Sendastaðir ehf, verði úthlutað svæði fyrir uppsetningu fjarskiptamasturs á umræddu svæði við Suðurhóla. Mælist nefndin til þess að málið verði tekið til afgreiðslu innan samráðsfundar mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar. Komi ekki fram athugasemdir við framkvæmdina mælist nefndin til þess að tillagan verði grenndarkynnt aðliggjandi landeigendum og lóðarhöfum. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ljúka málinu á grundvelli heimilda 3.mgr. 43. gr. skipulagslaga í samráði við umsækjanda. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 7. 2607022 - Selfosslína 1 - Breyting á legu jarðstrengs - Aðalskipulagsbreyting |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 8. 2607011 - Lóðarumsókn - Hjalladæl 25 |
| Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti en í ljósi endurskoðunar á samþykkt um byggingarréttar og gatnagerðargjöld vísar hún umsókninni til afgreiðslu í bæjarráði. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 9. 2607043 - Tryggvagata 36 - Íbúð og bílastæði - Deiliskipulagsbreyting |
| Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá gildandi deiliskipulagi telur skipulagsnefnd að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og er því ekki talin þörf á að grenndarkynna breytinguna sérstaklega. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 10. 2607066 - Umsagnarbeiðni; Hjarðarból - Fjölgun íbúðalóða óv. ASKbr |
| Skipulagsnefnd Árborgar gerir ekki athugasemd við framlagða breytingu á aðalskipulagi Ölfus. Tillagan tekur ekki til svæðis sem liggur að sveitarfélagamörkum og telur nefndin því ekki að tillagan hafi með hagsmuni sveitarfélagsins Árborgar að gera. |
| Til kynningar |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 11. 2606017F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 175 |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 |
|