Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 130

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
22.05.2025 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2503321 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2025
Lagt fram milliuppgjör sveitarfélagsins út mars 2025.
Lagt fram milliuppgjör út mars 2025.
Rekstraryfirlit Mars 2025.pdf
2. 2505207 - Samningur um áskrift að bílastæðum
Samningur um nýtingu bílastæða fyrir starfsfólk Ráðhúss Árborgar á vinnutíma vegna skorts á bílastæðum við Ráðhús Árborgar.

Lagt er til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð 2.241.000-

Bæjarráð samþykkir samning um áskrift af bílastæðum fyrir starfsfólk Ráðhúss Árborgar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka vegna aukins kostnaðar vegna samnings kr. 2.241.000,- og leggja til samþykktar í bæjarstjórn.
Samþykkt
3. 2505007 - Nafnaréttur - erindi frá Knattspyrnudeild Stokkseyrar
Erindi frá stjórn Knattspyrnudeildar Stokkseyrar, dags. 2. maí, þar sem óskað er eftir leyfi frá sveitarfélaginu um að vallarstæðið á Stokkseyri fái nafnið Eyrarfiskvöllurinn næstu tvö árin hið minnsta. Sett yrði upp skilti við völlinn.
Er á dagskrá fræðslu- og frístundanefndar 21. maí.

Erindið var tekið fyrir á fundi fræðslu- og frístundanefndar 21. maí sl. og bókaði nefndin eftirfarandi: "Fræðslu- og frístundanefnd áréttar að íþróttavöllurinn á Stokkseyri haldi sínu nafni. Nefndin heimilar hins vegar fyrir sitt leyti að Knattspyrnudeild Stokkseyrar geti aflað tekna með því að kenna íþróttavöllinn við ákveðið fyrirtæki með skilti enda sé það gert tímabundið. Erindinu vísað áfram til bæjarráðs."

Bæjarráð samþykkir að íþróttavöllurinn á Stokkseyri verði nefndur Eyrarfiskvöllurinn næstu tvö árin hið minnsta.
Samþykkt
Tölvupóstur - Nafnabreyting á knattspyrnuvellinum á Stokkseyri.pdf
4. 2505154 - Framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2025-2026
Erindi frá Innviðaráðuneytinu, dags. 9. maí um framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2025-2026.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á mannvirkja- og umhverfissviði.
Samþykkt
Framlög til útbóta á aðgengismálum.pdf
5. 2505157 - Starfsleyfi vegna jarðborana
Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, dags. 12. maí um starfsleyfisskyldu vegna jarðborana.
Lagt fram til kynningar og til skoðunar á mannvirkja- og umhverfissviði.
Samþykkt
6. 2505182 - Samráðsgátt - endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga
Erindi frá Innviðaráðuneytinu, dags. 14. maí þar sem kynnt er til samráðs mál nr. S-89/2015. Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) Umsagnarfrestur er til 9. júní nk.
Lagt fram til kynningar og vísað til skoðunar á stjórnsýslu- og fjármálasviði.
Samþykkt
Tölvupóstur - Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála kynnt í samráðsgátt.pdf
Afnám undanþágu rafveitna frá fasteignamati Samráðsgátt .pdf
Samráðsgátt - Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja).pdf
Samráðsgátt Áform um lagasetningu - Skattlagning orkumannvirkja maí 2025 X.pdf
Samráðsgátt Mat á áhrifum - Skattlagning orkumannvirkja.pdf
7. 2505186 - Samráðsgátt - endurskoðun sveitarstjórnarlaga
Erindi frá Innviðaráðuneytinu, dags. 14. maí þar sem kynnt er til samráðs mál nr. S-88/2015. Áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga. Umsagnarfrestur er til 9. júní nk.
Lagt fram til kynningar og vísað til skoðunar á stjórnsýslu- og fjármálasviði.
Samþykkt
Tölvupóstur - Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála kynnt í samráðsgátt.pdf
Samráðsgátt - Áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga.pdf
Kynning - Endurskoðun sveitarstjórnarlaga.pdf
Áform endurskoðun sveitarstjórnarl - loka fyrir samráð.pdf
Frummat á áhrifum lagasetningar v. sveitarstjórnarlaga - loka fyrir samráðsgátt.pdf
8. 2505190 - Umsögn - frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða - veiðistjórn grásleppu, 298. mál
Erindi frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 14. maí, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál. Umsagnafrestur er til og með 28. maí.
Lagt fram til kynningar.
Tölvupóstur - Til umsagnar frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis 298. mál.pdf
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða.pdf
9. 2505209 - Samráðsgátt - Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029
Erindi frá Innviðaráðuneytinu, dags. 15. maí þar sem kynnt er til samráðs mál nr. S-90/2015. Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029. Umsagnarfrestur er til og með 28. maí nk.
Lagt fram til kynningar og vísað til skoðunar hjá stjórnsýslu- og fjármálasviði. Bæjarráð leggur til að erindið verði lagt fram til kynningar í fagnefndum sveitarfélagsins.
Samþykkt
Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029.pdf
Sóknaráætlun Suðurlands.pdf
10. 2505213 - Brúarhlaup Selfoss 2025
Erindi frá Umf. Selfoss, dags. 17. maí, vegna Brúarhlaups Selfoss sem fram fer laugardaginn 9. ágúst nk. Þar er óskað eftir afnotum af landi sveitarfélagsins á hlaupadag. Einnig er óskað eftir því að fá að loka Engjavegi, frá gatnamótum Engjavegar og Tryggvagötu og vestur að gatnamótum Engjavegar og Kirkjuvegar, gatnamótum Sigtúns/Mánavegar og Sigtúns/Sunnuvegar, frá kl. 08.00 til klukkan 13.00 á hlaupadag. Einnig er óskað eftir tímabundnum lokunum á Árvegi á móts við HSU, meðan ræsingar í veglengdum fara fram.

Að lokum er óskað eftir því að fá aðstoð bæjaryfirvalda við þessa lokun og aðgang að fánaborgum í miðbæjargarði á hlaupadag.
Einnig er óskað eftir því að þátttakendur fái frítt í sund að hlaupi loknu og aðstöðu til fataskipta.

Bæjarráð samþykkir beiðni Umf. Selfoss um lokanir og aðgang að fánaborgum í Sigtúnsgarði í samráði við mannvirkja- og umhverfissvið. Jafnframt er samþykkt að veita þátttakendum aðgang að Sundhöll Selfoss án endurgjalds.

Bent er á að senda þarf sér beiðni á Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar vegna afnota af landi og götum sveitarfélagsins.
Samþykkt
Brúarhlaup 2025 bréf til Árborgar.pdf
11. 2206157 - Fundartími bæjarráðs kjörtímabilið 2022-2026
Lagt er til að næsti fundir bæjarráðs verði föstudaginn 30. maí kl. 8:10.
Samþykkt
Fundargerðir
12. 2504024F - Skipulagsnefnd - 44
44. fundur haldinn 14. maí.
Fundargerðir til kynningar
13. 2301137 - Fundargerðir stjórnar Arnardrangs hses 2022-2026
22. fundur haldinn 7. apríl.
Lagt fram til kynningar.
22. stjórnarfundur Arnardrangs.pdf
14. 2502030 - Fundargerðir stjórnar SASS 2025
622. fundur haldinn 9. maí.
Lagt fram til kynningar.
Stjórn SASS-Fundargerð 622. 9.maí -2025[25].pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica