Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd - 62

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
19.06.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Linda Björk Hilmarsdóttir formaður, D-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Esther Ýr Óskarsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Árni Magnússon nefndarmaður, S-lista,
Guðný Björk Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Matthías Bjarnason bæjarfulltrúi, B-lista,
Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi,
Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi,
Fundargerð ritaði: Skipulagsfulltrúi f.h. Lindu Bjarkar Hilmarsdóttur, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2606156 - Kosning varaformanns í skipulagsnefnd - 2026-2030
Lögð fram tillaga um Ara Björn Thorarensen sem varaformann skipulagsnefndar Árborgar fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Samþykkt samhljóða tillaga um skipan Ara Björns sem varaformanns skipulagsnefndar.
Samþykkt
2. 2606157 - Erindisbréf skipulagsnefndar 2026-2030
Lagt er fram erindisbréf skipulagsnefndar Árborgar fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar
3. 2606110 - Þagnarskyldu- og trúnaðaryfirlýsing
Þagnarskyldu- og trúnaðaryfirlýsing fyrir kjörna fulltrúa og nefndarmenn hjá Sveitarfélaginu Árborg lögð fyrir til undirritunar. Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Sveitarfélaginu Árborg lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til undirritunar.
Samþykkt
4. 2601095 - Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting
Lögð er fram tillaga er varðar breytingar á skilmálum aðalskipulags Árborgar 2020-2036, fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Skipulagssvæðið sem aðalskipulagsbreyting nær til er tæpir 6 ha.
Megin breytingin fellst í að gerð er ítarlegri grein fyrir í samantektartöflu fyrir Mörk og Grænumörk, fjölgun íbúða á svæðinu, auk fjölda hæða. Samhliða breytingu aðalskipulags verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Tillagan var kynnt almenningi með auglýsingu skv. 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá 30. apríl til 26. maí 2026. Umsagnir liggja fyrir frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Vegagerðinni. Þá komu fram athugasemdir frá íbúum við Austurveg og Heiðmörk auk húsfélags innan svæðisins.

Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn Árborgar að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Grænumarkar verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Við afgreiðslu málsins er lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við kynningu málsins ásamt viðbrögðum. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að deiliskskipulagstillaga sem er í vinnslu fyrir svæðið verði sérstaklega kynnt íbúum svæðisins þegar hún liggur fyrir og leitað verði umsagnar hjá öldungaráði sveitarfélagsins.
Samþykkt
5. 2603240 - Dvergasteinar; Deiliskipulagsbreyting
Lögð er fram að lokinni auglýsingu, tillaga deiliskipulagsbreytingar fyrir götuna Dvergasteina á Stokkseyri. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir heimild fyrir raðhús á lóð Dvergasteina 1 og 3 þar sem áður var gert ráð fyrir einbýlishúsum. Samhliða er gert ráð fyrir að gatan verði að botnlanga. Engar aðrar breytingar eru gerðar á byggingaskilmálum annarra lóða deiliskipulagsins.
Tillagan var auglýst frá 30. apríl 2026, með athugasemdafresti til 15. júní 2026. Fyrir liggur jákvæð umsögn Vegagerðarinnar.
Engar athugasemdir hafa borist.

Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir auglýsingu. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsdeild falið að ljúka málinu.
Samþykkt
6. 2602026 - Austurbyggð II - Fjölgun íbúðar á raðhúsalóðum og vegtenging - Deiliskipulagsbreyting
Tekin til afgreiðslu að lokinni grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi íbúðabyggðar í Austurbyggð II, á Selfossi. Gerð er breyting í texta greinargerðar kafla 6.3 Raðhús-R1, þar sem gert er ráð fyrir að byggja megi allt að 6 íbúða raðhús, á lóðunum Skógarland 1-9, Skógarland 11-19, Gljúfurlands 2-10 og Gljúfurlands 12-20. Þá er á uppdrætti gert ráð fyrir nýrri aðkomu af Gaulverjabæjarvegi inn á götuna Háland.
Fyrir liggja jákvæðar umsagnir frá Vegagerðinni og Selfossveitum.
Athugasemdir hafa borist frá Sverri Sigurjónssyni lögmanni f.h.Hestamannafélagsins Sleipnis, Landssambandi Hestamanna, 6 einstaklingum, auk undirskriftarlista á forsvari Berglindar Sveinsdóttur sem 308 einstaklingar skrifa undir. Athugasemdir við breytingartillögu eru margar hverjar að berast eftir að grenndarkynningartíma lauk en eru lagðar fram við afgreiðslu málsins eftir kynningu.
Í öllum tilfellum eru gerðar athugasemdir við nýja aðkoma inn i hverfið af Gaulverjabæjarvegi, sem muni skerða öryggi hestafólks. Þá gerir Sverrir f.h. Sleipnis athugasemd við málsmeðferð skipulagsbreytingar, og telur að ferli tillögu hefði átt að vera til samræmis við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar verulega breytingu á deiliskipulagi. Engar athugasemdir eru gerðar við fjölgun íbúða á raðhúsalóðum.


Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess að sá hluti tillögunnar er varðar fjölgun íbúða á raðhúsalóðum við Skógarland og Gljúfurland verði samþykktur. Mælist nefndin til þess að ný tenging við Gaulverjabæjarveg út frá Hálandi verði tekin út úr tillögunni og hún rýnd betur m.t.t. hugsanlegra mótvægisaðgerða vegna reiðleiðar sem þvera þarf tenginguna í ljósi fjölda athugasemda sem bárustu við þann hluta breytingartillögunnar.
Skipulagsdeild falið að ljúka málinu og annast samskipti við málsaðila um hugsanlegar lausnir á viðkomandi tengingu til framtíðar og hestamannafélagið um hugsanlegar lausnir vegna reiðleiða á svæðinu.



Samþykkt
7. 2603243 - Lóðaumsókn; Víkurheiði 3; Valssynir ehf.
Valssynir ehf óskar eftir að fá lóðinni Víkurheiði 3 úthlutað til uppbyggingar á verslun, skrifstofum og iðnaðarbilum á lóðinni. Samhliða er óskað eftir því að skipulag svæðisins verði aðlagað að þörfum umsækjanda er varðar stærð lóðarinnar.
Skipulagsnefnd Árborgar gerir ekki athugasemd við að lóðinni Víkurheiði 3 verði úthlutað til félagssins Valssynir ehf með þeim fyrirvara um jákvætt vilyrði frá banka berist. Skipulagsdeild falið að ljúka málinu.
Samþykkt
8. 2605177 - Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036; Breyting á skilmálum vegna vatnasvæða V1
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Árborgar sem tekur til skilmála innan kafla um vatnasvæði V1.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar.
Samþykkt
9. 2606057 - Fossmúli; Breyting á aðalskipulagi Árborgar; íbúðarsvæði ÍB44
Landeigendur Fossmúla óska eftir þvi að sveitarfélagið geri breytingu á aðalskipulagi sem unnin verði við næstu endurskoðun og/eða vegna breytinga á aðalskipulagi Árborgar. Í breytingunni fælist að svæðið ÍB44 verði stækkað sem nemur aðliggjandi íbúðarbyggð í landi Jórvíkur. Innan deiliskipulags Jórvíkur er gert ráð fyrir mögulegum götutengingum inn á land Fossmúla m.a. inn á það svæði sem í dag er skilgreint sem landbúnaðarland á aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að ekki verði gerð athuagsemd við framlagða beiðni um breytingu á aðalskipulagi og að hún verði unnin samhliða endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins og/eða vegna breytingar sem sveitarfélagið ætlar sér að vinna á gildandi aðalskipulagi.
Samþykkt
10. 2606061 - Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til lóðar Hásteinsvegar 30. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja á lóðinni allt að fimm stakstæð tveggja hæða timburhús innan byggingarreita sem koma fram á skipulagsuppdrætti. Fjórir byggingarreitir eru eru staðsettir í röð við syðri hluta lóðar og einn við norðurhluta nær Hásteinsvegi. Byggingar á syðri hluta lóðar skulu vera tvíhalla með mænisstefnu skv. skipulagsuppdrætti en sú sem stendur á nyrðri hluta má vera tvíhalla eða með valmaþaki. Nota skal byggingarefni sem samræmast heildarhugmyndafræði tillögunar, þ.e. að klæðningar veggja verði úr timbri og þak verði annaðhvort bárujárn í náttúrulegum ál-lit eða timburklæðning. Áhersla skal lögð á lágreista byggð, einföld húsform, náttúruleg efni og að byggðin falli að sögulegu byggðarmynstri og landslagi Stokkseyrar. Ekki eru gerðar breytingu á lóðarstærð eða hámarks nýtingarhlutfalli samkvæmt núverandi deiliskipulagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir heimild fyrir raðhúsi og bílskúrum.

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að framlögð deiliskipulagsbreyting verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Tillagan verði sérstaklega kynnt íbúum nærliggjandi lóða.
Samþykkt
11. 2601204 - Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga Larsen hönnuða tekin til afgreiðslu að lokinni auglýsingu skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Markmið með deiliskipulagsbreytingu er að bæta nýtingu fjölbýlishúsalóða með fjölgun íbúða, stækkun á byggingareit, bilastæðum fækkað og hámarks vegg / mænishæð er hækkuð. Á fjölbýlishúsalóðum F2 eru bílastæði áfram 1 á hverja íbúð en teknar eru út kröfur sem taka til gestastæða. Hámarks vegg / mænishæð hækkar úr 8 m upp í 10 m. Á lóðunum Fossvík 1, 3 og 5 eru byggingareitir stækkaðir og íbúðum fjölgað í samræmi. Á lóðinni Nýja Jórvík 13, er íbúðum fjölgað. Að öðru leiti gilda eldri samþykktir skilmálar.
á lóð Nýju Jórvík 13 fjölgar íbúðum úr 12 í 20. Innan Fossvíkur 1 fjölgar íbúðum 8 íbúðum í 12. Innan Fossvík 3 fjölgar íbúðum úr 8 í 16. Innan Fossvíkur 5 fjölgar íbúðum úr 8 í 12. Fjölgun samtals úr 36 íbúðum í 62. Tillagan var auglýst frá 9. apríl 2026, með athugasemdafresti til 22. maí 2026. Einnig var tillagan kynnt fyrir fasteignaeigendum á áhrifasvæði tillögunnar.
Jákvæðar umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu og Vegagerðinni.
Athugasemdir bárust frá ríflega 20 fasteignaeigendum. Athugasemdir snéru að mikilli hæð húsa, fækkun bílastæða, skuggavarpi, skerðingu á útsýni, aukinnan umferðar auk þéttingar/fjölgunar íbúða.

Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að skoða athugasemdir sem varða fjölda bílastæða innan tillögunnar í samráði við málsaðila.

Frestað
12. 2606056 - Fossmúli; Deiliskipulag íbúðarhverfis ÍB44
Lögð er fram beiðni frá landeigendum Fossmúla þar sem óskað er eftir heimild sveitarfélagsins til að hefja gerð deiliskipulagsáætlunar sem tekur til hluta skilgreinds íbúðarsvæðis ÍB44 innan aðalskipulags Árborgar 2020-2036. Gert er ráð fyrir því að vinnsla deiliskipulagsins taki mið af stefnumörkun aðalskipulags og gildandi deiliskipulagi aðliggjandi lands Jórvíkur 1.
Skipulagsnefnd Árborgar gerir ekki athugasemdir við að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir skilgreint íbúðarsvæði innan lands Fossmúla 1. Mælst er til þess að skipulagið verði unnið í samráði við skipulagsfulltrúa og skipulagsnefnd sveitarfélagsins.
Samþykkt
13. 2606065 - Skógarflöt 9a; óveruleg breyting á deiliskipulagi; Gestahús
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á deiliskipulagi sem tekur til lóðar Skógarflatar 9a. Í breytingunni felst að skilgreindar eru byggingarheimildir fyrir stakstæðu gesta- og/eða gistihúsi allt að 50 fm innan byggingarreits íbúðarhúss. Heildar nýtingarhlutfall lóðarinnar helst óbreytt.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Mælist nefndin til þess að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi og verði grenndarkynnt.
Samþykkt
14. 2606117 - Skipar 4; Fyrirspurn til skipulagsnefndar; Breytt landnotkun frístundasvæðis
Lögð er fram fyrirspurn til skipulagsnefndar sem tekur til breytingar á landnotkun lóðarinnar Skipa 4 innan frístundsvæðis F3.
A) Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags er innan bújarða gert ráð fyrir að heimilt sé að byggja allt að 4 stök frístundahús án þes að landnotkun sé sérstaklega skilgreind sem frístundasvæði. Úr jörðinni Skipar 2 virðast hafa verið stofnaðar 4 frístundalóðir, Skipalundur, Skipar lóð, Skipar 3 og Skipar 4 sem eru innan viðkomandi skilgreinds frístundasvæðis F3. Á grundvelli fyrrgreindrar stefnumörkunar aðalskipulags á landbúnaðarlandi gætu þessi hús því staðið utan skilgreindrar frístundabyggðar. Viðkomandi fasteign liggur nokkuð vel við gagnvart vegtenginu þar sem hún er í um 720 m fjarlægð frá Gaulverjabæjarvegi og gæti deilt núverandi tengingu við Gaulverjabæjarveg með Skipum 1 land. Ekki er deiliskipulag í gildi sem tekur til frístundasvæðis F3 en samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags er gert ráð fyrir allt að 12 frístundahúsum innan svæðisins. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í framlagða fyrirspurn og mælist til þess að erindið verði tekið til skoðunar við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins og/eða við breytingar á aðalskipulagi í samráði við landeiga Skipar 2 þar sem hluti skilgreinds frístundasvæðis liggur utan skilgreindra lóða. Forsendur breyttrar notkun húsa úr frístundahúsi í íbúðarhús er í öllum tilfellum að húsið standist þær kröfur sem gerðar eru til íbúðarhúsa auk þess sem æskilegt er að leita umsagnar Vegagerðarinnar sem verður veghaldari vegarins við breytta notkun.

Samþykkt
15. 2606125 - Austurvegur 23; Beiðni um vinnslu deiliskipulags
Lögð er fram beiðni um heimild til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir lóð Austurvegar 23 á Selfossi. Markmið deiliskipulagsins er að kanna möguleika á uppbyggingu verslunar-, þjónustu- og íbúðarbyggingar á lóðinni sem styrki miðbæjarsvæðið og stuðli að áframhaldandi uppbyggingu og þróun miðbæjar Selfoss. Lóðin er óbyggð og felast í fyrirhugaðri uppbyggingu tækifæri til að styrkja og bæta götumynd Austurvegar ásamt því að nýta þá innviði og þjónustu sem þegar eru til staðar á svæðinu.
Skipulagsnefnd Árborgar gerir ekki athugasemdir við að hafin verði vinna við deiliskipulagsbreytingu sem tekur til lóðar Austurvegar 23. Mælst er til þess að viðkomandi skipulagsbreyting verði unnið í nánu samráði við skipulagsfulltrúa og skipulagsnefnd sveitarfélagsins. Lögð verði áhersla á samráð við aðliggjandi lóðarhafa þar sem lóðin er í mikilli nálægð við núverandi íbúðarbyggð og að unnið verði í samræmi við almenna skilmála aðalskipulags um miðsvæði þar sem segir:
Á miðsvæði er reiknað með nýtingarhlutfalli á bilinu 1,0 - 2,5. Ef verið er með bílastæðakjallara getur nýtingarhlutfall verið allt að 3,0. Nýtingarhlutfall skal skoða fyrir hvert svæði fyrir sig út frá aðstæðum, s.s. aðlögun að nálægri byggð, skuggamyndun, samgöngulausnum fyrir alla ferðamáta, veðurfarslegum áhrifum o.fl. Gera skal grein fyrir þessum atriðum í deiliskipulagi viðkomandi reits.
- Ný mannvirki verði að jafnaði á 3-6 hæðum, en þó skal taka mið af nálægri byggð.
- Heimilt er að vera með djúpgáma fyrir sorp.
- Við deiliskipulag svæða við Austurveg og Eyrarveg skal kortleggja hávaða frá umferð og ef þarf að setja fram aðgerðir til að draga úr hávaða.
Jafnframt skal horfa til hönnunarviðmiða fyrir Austurveg og Eyrarveg.
Samþykkt
16. 2512229 - Beiðni um vilyrði fyrir lóðum Breiðamýri 8 og 10
Á grundvelli vilyrðis bæjarráðs Árborgar er varðar lóð Breiðamýri 8-10, L228410 er lögð fram tillaga um að úthluta lóð Breiðamýri 8 formlega til Eimskip Ísland ehf.
Skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni Breiðumýri 8, L228410 til Eimskip Ísland ehf. Skipulagsfulltrúa falið að ljúka málinu.
Samþykkt
Erindi til kynningar
17. 2603055 - Rimahverfi;Leikvæði og skipulag
Lagt er fram minnisblað Skipulagsfulltrúa varðandi leiksvæði innan Rimahverfis.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir
18. 2604028F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 172
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 172
Lagt fram til kynningar.
19. 2605011F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 173
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 173
Lagt fram til kynningar.
20. 2606001F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 174
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 174
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica