Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd - 60

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
15.04.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Ari B. Thorarensen formaður, D-lista,
Axel Sigurðsson nefndarmaður, Á-lista,
Björgvin Guðni Sigurðsson nefndarmaður, S-lista,
Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista,
Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi, Sveinn Ægir Birgisson varamaður, D-lista.
Fundargerð ritaði: Ari B Thorarensen, formaður skipulagsnefndar


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2603313 - Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Gámasvæði textabreyting
Íslenska gámafélagið óskar eftir breytingu á greinargerð Aðalskipulags Árborgar 2020-2036, nánar tiltekið á ákvæði um reit I7 Endurvinnslusvæðis í töflu 32, kafla 4.2.8 Iðnaðarsvæði.

Óskað er eftir að eftirfarandi texti verði felldur brott eða honum breytt:
"Í gildi er deiliskipulag af hluta reitsins þar sem gert er ráð fyrir gámasvæði með móttöku efna til endurvinnslu og spilliefna. Sú starfsemi er víkjandi af svæðinu á skipulagstímabilinu og skal færast inn á svæði á Sandvíkurheiði".

Óskað er eftir að orðalagi verði breytt á þann hátt að starfsemi sem felur í sér móttöku og flokkun úrgangs, þ.m.t. efna til endurvinnslu, geti verið áfram heimil á reit I7 og teljist því ekki sem víkjandi starfsemi.

Skipulagsnefnd Árborgar gerir ekki athugasemdir við framlagða beiðni og vísar málinu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn. Samhliða viðkomandi breytingu á aðalskipulagi telur nefndin þörf á að unnin verði breyting á deiliskipulagi svæðisins þar sem starfsemi svæðisins og heimildir verði skilgreindar með ítarlegri hætti í takt við rekstur þess til framtíðar.
Samþykkt
2. 2501168 - Eyravegur 26-30 - Deiliskipulagsbreyting - Niðurfelling kvaðar um gegnumakstur.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi fyrir Eyraveg 26-30 var grenndarkynnt frá 3.febrúar - 3.mars 2026.
Athugasemdir f.h. Funabergs ehf bárust með bréfi eftir grenndarkynningu málsins dags. 19.mars 2026 var lokið og athugasemdafrestur út runninn.
Auglýsing um tillögu deiliskipulagsbreytingar var send í B-deild Stjórnartíðinda 10.mars 2026 og tók gildi 24.mars 2026.
Athugasemdir Funabergs lagðar fram fyrir skipulagsnefnd til kynningar.

Að mati skipulagsnefndar var staðið að breytingu deiliskipulag og kynningu breytingarinnar með fullnægjandi hætti með grenndarkynningu til lóðarhafa í gegnum island.is. Framlagðar athugasemdir bárust eftir að kynningartíma tillögunnar lauk og telur nefndin því ekki þörf á að bregðast sérstaklega við þeim á þessu stigi málsins. Tillaga um niðurfellingu umferðarréttar byggði fyrsta lagi á mismunandi notkun og starfsemi innan þessara aðliggjandi lóða. Á lóð Eyrarvegar 32 er verslunar- og þjónustu- og athafnastarfsemi þar sem rafverkstæði er m.a. rekið í húsinu. Þeirri starfsemi fylgir útgerð ökutækja auk efnis og annars sem lóðarhafi getur þurft að geyma innan lóðar til lengri eða skemmri tíma. Sú starfsemi fellur illa saman við almenna umferð innan íbúðarhverfis að mati nefndarinnar. Í öðru lagi náði það svæði sem umrædd kvöð tók til yfir eignarlóð sem sveitarfélagið hafði ekki tryggt sér fullnægjandi ráðstöfunarrétt yfir til að geta fylgt kvöðinni eftir með fullnægjandi hætti.
Til framtíðar, telur nefndin að breytt notkun lóðar Eyravegar 32 væri megin forsenda skilgreiningar kvaðar um umferð á milli lóða að norðanverðu. Eftir sem áður er kvöð skilgreind um suðurhlið lóðarinnar þar sem verslun - og þjónusta er og sameiginleg innkeyrsla er frá Eyravegi. Skipulagsfulltrúi upplýsir nefndina jafnframt um að til skoðunar sé að útbúa hring tengingu austan Eyravegar 26 sem myndi opna á tenginu á milli bílastæða og geti með þeim hætti skapað betra umferðarflæði. Nefndin bendi þó jafnframt á að tvær tengingar út frá bílastæðum við fjölbýlishús er ekki forsenda fyrir uppbyggingu fjölbýlishúsa.
3. 2603015 - Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag
Lögð er fram uppfærð tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til svæðis I2 innan aðalskiplags Árborgar. Skipulagsreiturinn nær til um 9,9 ha lands sem nær yfir lóð Sláturfélags Suðurlands og svæði fyrir nýjan aðkomuveg. Lóð sláturhúss og afurðastöðvar er 9,6 ha að stærð og er nú þegar byggð að hluta. Sláturfélag Suðurlands hyggst byggja nýtt sláturhús/afurðastöð fyrir stórgripaslátrun, vestan við núverandi byggingar. Núverandi byggingarmagn á iðnaðarlóðinni skv. fasteignaskrá er um 4.565m2 og er gert ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000m2 þar sem um 2000 - 2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Auk nýrra húsa er gert ráð fyrir endurnýjun á núverandi húsnæði sláturhússins.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Samþykkt
4. 2512019 - Búðarstígur 23C - Hækkun húss - Breyting á skilmálum deiliskipulags
Mál til afgreiðslu að loknu kynningarferli, frá 10.12.2025. til og með 16.1.2026. Ein athugasemd barst við grenndarkynningu málsins og er hún lögð fram við afgreiðslu þess ásamt samantekt andsvara. Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar þann 23.3.2026 þar sem afgreiðslu málsins var frestað og farið fram á að fjallað yrði nánar um dvalarsvæði íbúa á lóð auk þess sem nánari staðsetningu sorpgerðis innan skipulagsins væri skilgreind. Áður var búið að gera athugasemdir við tillöguna er varðaði atriði um eignarhald íbúða á annarri hæð og iðnaðarbila auk þess farið var fram á þrívíða tillögu teikningu af húsinu. Í breytingunni felst að húsið hækki um 100 cm sem nýttir verða til að bæta við auka hæð í húsið. Gert ráð fyrir allt að 8 iðnaðarbilum á jarðhæð viðbyggingar, allt að 8 íbúðum á annari hæð hússins tengt iðnaðarbilum og 6 íbúðum á 3 hæð. Tilgreint er innan greinargerðar breytingartillögunnar að eignarhald íbúða á 2.hæð og iðnaðarbila á 1. hæð skuli haldast í hendur undir sama fasteignanúmeri auk þess sem gert hefur verið grein fyrir dvalarsvæðum innan lóða og sorpi.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir kynningu. Að mati nefndarinnar hefur verið brugðist við athugasemdum nefndarinnar og athugasemdum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og samantektar athugasemda og andsvara. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda og skipulagsstofnun verði send tillagan til varðveislu.
Samþykkt
5. 2604081 - Litla Sandvík; Deiliskipulagstillaga
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags tekur til hluta úr landi Litlu Sandvíkur, landi 1. (L211951), sem staðsett er í dreifbýli í Sveitafélaginu Árborg. Markmið skipulagsins er að gera ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, skemmu og smáhýsa ásamt nauðsynlegum innviðum. Skipulagssvæðið nær til um 48.000 m², sem er um þriðjungur af heildarstærð jarðarinnar.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Samþykkt
6. 2604083 - Víkurheiði 10; Stækkun lóðar; Fyrirspurn til skipulagsnefndar
Lögð er fram fyrirspurn til skipulagsnefndar er varðar hugsanlega stækkun lóðar Víkurheiði 10 samhliða endurskoðun deiliskipulags að Víkurheiði.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu framlagðrar fyrirspurnar. Skipulagsfulltrúa falið að taka málið til umræðu við vinnslu deiliskipulagstillögu fyrir Víkurheiði sem nú er í vinnslu.
Frestað
7. 2602205 - Austurvegur 61 og 63 - Fjölgun íbúða og breytt byggingarmagn - Deiliskipulagsbreyting
Lögð er að nýju fram beiðni um breytingu á deiliskipulagsskilmálum lóðar Austurvegar 61-63. Í tillögunni felst fjölgun íbúða með heimild fyrir minni íbúðum, stækkun bílakjallara og fjölgun bílastæða í takt við fjögun íbúða úr 21-27. Innan uppfærðar gagna er gert ráð fyrir 23 bílastæðum í kjallara og 4 á lóð. Fjölgun bílastæða er því eingöngu neðanjarðar.
Skipulagsnefnd samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá gildandi deiliskipulagi telur skipulagsnefnd að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og telur því ekki talin þörf á að grenndarkynna breytinguna sérstaklega. Breytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda og skipulagsstofnun verði send tillagan til varðveislu.

Samþykkt
8. 2604102 - Árbakkaland; Deiliskipulagsbreyting
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Árbakkalands er varðar fjölgun lóða. Í breytingunni felst að heildarfjöld einbýlishúsa fer ú 20 í 19. Breytingin tekur til kafla 4.1.1. þar sem fjöldi einbýlishúsa og lóða á svæði E1 er skilgreindur.
Skipulagsnefnd samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá gildandi deiliskipulagi telur skipulagsnefnd að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og telur því ekki talin þörf á að grenndarkynna breytinguna sérstaklega. Breytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda og skipulagsstofnun verði send tillagan til varðveislu.
Samþykkt
Fundargerðir
9. 2603024F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 170
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr.170.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica