Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Umhverfisnefnd - 22

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
27.05.2025 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Daníel Leó Ólason formaður, Á-lista,
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir nefndarmaður, D-lista,
Björg Agnarsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Guðrún Rakel Svandísardóttir nefndarmaður, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir nefndarmaður, S-lista,
Ágúst Þór Bragason deildarstjóri.
Fundargerð ritaði: 


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
Formaður óskar eftir að taka mál á dagskrá með afbrigðum. Nefndin samþykkir að taka mál á dagskrá er varðar umhverfisverkefni sumarsins.
1. 2302015 - Breyting á opnunartíma gámasvæðisins
Tillaga Mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar að nýjum opnunartíma á gámasvæði Árborgar.
Nefndin mælir með því að lengja opnunartíma gámasvæðisins á miðvikudögum til kl. 18:00 og að sú breyting gildi til 30. september nk.
Samþykkt
2. 2302033 - Úthlutun beitarhólfa
Farið yfir úthlutanir beitarhólfa frá síðasta fundi
Farið yfir reynsluna að úthlutun beitarhólfa eftir þeim reglum sem sveitarstjórn setti árið 2021 og unnið hefur verið eftir. Nefndin ákveður að endurskoða reglur um úthlutun beitarhólfa.
Tveir aðilar sem fengu úthlutað beitarhólfi á síðasta fundi hafa dregið umsókn sína til baka. Nefndin samþykkir að úthluta þeim hólfum til þess aðila sem næstur var í röðinni.
Samþykkt
3. 2505262 - Umhverfisverðlaun - 2025
Umhverfisnefnd tekur fyrir hvernig fyrirkomulag umhverfisverðlauna Árborgar verður háttað í ár. Á síðasta ári var lögð áhersla á að veita viðurkenningar fyrir fallegustu götuna, fallegasta garðinn og fyrir framlag til umhverfismála.
Nefndin samþykkir að auglýsa eftir tilnefningum í byrjun júlí nk. og taka til afgreiðslu fyrir bæjarhátíðina Sumar á Selfossi. Lögð verði áhersla á að veita viðurkenningar fyrir fallegustu götuna, fallegasta garðinn, fallegasta fyrirtækið/stofnun og fyrir framlag til umhverfismála.
6. 2505345 - Umhverfisverkefni í Árborg 2025
Farið yfir nokkur verkefni sem unnið er að sumarið 2025
Erindi til kynningar
4. 2504286 - Ályktun - uppbygging grænna svæða í þéttbýli
Kynnt ábending Skógfræðingafélags Íslands þar sem vakin er athygli sveitarstjórna í landinu að græn svæði í þéttbýli eru mikilvæg fyrir lýðheilsu fólks og að sveitarfélög nýti sérþekkingu skógfræðinga til að styðja við uppbygginu grænna svæða í þéttbýli.
Lagt fram til kynningar
5. 2505209 - Samráðsgátt - Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029
Bæjarráð vísaði Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029 til kynningar í fagnefndum Árborgar.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica