Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 154

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
28.05.2025 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2503227 - Tryggvagata 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ari Guðmundsson hönnuður fyrir hönd Ríkiseignir. sækir um leyfi til að endurnýja glugga fronta ásamt glerþaki á Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 3. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2502015 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Ópus Studio að Eyravegi 38
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Ópus studio um starfsleyfi vegna eigendaskipta.

Heiti staðar Ópus Studio að Eyraveg 38, 800 Selfoss F2302051

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
3. 21101233 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Dansakademíuna Eyravegur 38
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Dansakademíuna að Eyravegi 38 F2302051.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
4. 2505196 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi vegna reksturs gistingar að Sandfelli-Eyrarbraut 47
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Hjalta Gunnarssonar um starfsleyfi vegna reksturs gistingar þar sem að eigendaskipti hafa farið fram.

Heiti staðar Sandfell að Eyrarbraut 47, 825 Stokkseyri F2199620

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
5. 2505310 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Ungmennafélag Selfoss vegna reksturs félagsheimilisins Tíbra
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Ungmennafélag Selfoss um endurnýjun á starfsleyfi vegna reksturs félagsheimilisins Tíbrá og íþróttasvæðis að Engjavegur 50-54, fnr. F2185865 & F2233654.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica