|
| Almenn afgreiðslumál |
| 1. 2301178 - Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir |
Að mati skipulagsnefndar hefur verið brugðist við þeim annmörkun sem Úrskurðarnefnd Umhverfis- og auðlindamála var með til umfjöllunar í úrskurði sínum sem felldi fyrri gildistöku skipulagsins úr gildi. Bætt hefur verið við kafla innan greinargerðar skipulagsáætlunar sem tekur til mats á umhverfisáhrifum tillögunnar er varðar lyktarmengun, rykmyndun, hljóðvist, umferðarálag og sjónræn áhrif auk þess sem lögð er fram valkostagreining. Innan valkostagreiningar er tekið til valkostar A sem er núllkostur eða óbreytt ástand. Valkostur B tekur til uppbyggingar samkvæmt deiliskipulagi. Við samanburð valkosta liggur fyrir að áhrif hesthúsastarfsemi á svæðinu eru þegar til staðar í núverandi ástandi. Valkostur B felur í sér aukna nýtingu svæðisins, en breytir ekki grundvallareðli starfseminnar né landnotkun svæðisins. Með tilkomu deiliskipulagsins eru hins vegar settir skýrari og strangari skilmálar en áður um frágang, umgengni og umhverfisþætti, sem stuðla að því að draga úr grenndaráhrifum og gera þau fyrirsjáanlegri og viðráðanlegri. Að mati nefndarinnar hefur því verið brugðist við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust við tillöguna með fullnægjandi hætti innan hennar. Skipulagsnefnd Árborgar mælist því til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati skipulagsnefndar þarf að horfa til lengri framtíðar með áframhaldandi uppbyggingu hesthúsasvæðis sveitarfélagsins og telur ástæðu til að meta innan aðalskipulags möguleika á nýrri staðsetningu svæðisins til framtíðar til að tryggja hestamönnum framtíðar svæði með bættum reiðleiðum um sveitarfélagið.
|
| Samþykkt |
|
|
|
| 2. 2604235 - Víkurheiði - AT5; Endurskoðun deiliskipulags |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 3. 2608100 - Lóðarumsókn - Furugrund 24B |
| Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir að úthluta lóðinni Furugrund 24b til Hjálmars Jónssonar og Söndru Daggar Garðarsdóttir. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2607118 - Stöðuleyfi - Árvegur 6 |
| Samkvæmt stefnumörkun aðal- og deiliskipulags er gert ráð fyrir að minniháttar atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu geti verið á íbúðarlóðum. Skal þess gætt að atvinnustarfsemi í íbúðarbyggð valdi sem minnstum óþægindum vegna bílaumferðar, hávaða, ljósnotkunar eða annars ónæðis. Jafnframt er tilgreint að fjöldi bílastæða skuli vera í samræmi við eðli þeirrar starfsemi sem um ræðir. Þótt svo að starfsemin sem tilgreint er um í umsókninni geti talist í samræmi við skipulag svæðisins telur nefndin að útgáfa stöðuleyfis til annars aðila en lóðarhafa ekki samræmast þeirri stefnumörkun skipulags að samrýmast búsetu á svæðinu. Auk þess telur nefndin að slík starfsemi eigi betur heima innan athafnasvæðis en íbúðarsvæði. Erindi synjað. |
| Hafnað |
|
|
|
| 5. 2608064 - Opið svæði OP1; Óveruleg breyting á aðalskipulagi; Skátasvæði aukið byggingarmagn 2026 |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2608065 - Skátafélagið Fossbúar; óveruleg breyting á deiliskipulagi OP1 |
| Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Mælist nefndin til þess að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi og verði grenndarkynnt innan svæðisins. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 7. 2608071 - Austurvegur 69; Óveruleg breyting á deiliskipulagi |
| Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Mælist nefndin til þess að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 8. 2608030 - Árbakkaland; breyting á deiliskipulagi |
| Afgreiðslu málsins frestað. |
| Frestað |
|
|
|
| 9. 2608051 - Efnistökusvæði E2; Óverulega breyting á aðalskipulagi |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 10. 2606112 - Endurskoðun Aðalskipulags Árborgar - (2026-2038) 2028-2040 |
| Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkt verði að hefja vinnu við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Ein forsenda endurskoðunar aðalskipulags er m.a. sú mikla uppbygging sem átt hefur sér stað í sveitarfélaginu undanfarin ár og hvert skuli stefna í áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Tilgangur endurskoðunar aðalskipulags er að gefa sem gleggsta mynd af stöðu sveitarfélagsins og stefnu bæjarstjórnar í skipulagsmálum með víðtæku samráði við íbúa um skipulag sveitarfélagsins til næstu ára. Jafnframt telur nefndin mikilvægt að við endurskoðun aðalskipulags verði horft til lengri framtíðar en gildistíma aðalskipulagsins er viðkemur áætlana- og forsendurgerð m.t.t. uppbyggingar á íbúðarsvæðum og þjónustu auk skilgreiningar á helstu umferðarleiðum innan sveitarfélagsins í heild. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 11. 2608130 - Kirkjuvegur 8A og 8B; beiðni um heimild til vinnslu deiliskipulags |
Að mati skipulagsnefndar er ekki æskilegt að halda áfram á þeirri vegferð að vinna deiliskipulagsáætlanir sem taka til stakra lóða á því svæði sem um ræðir. Mælist nefndin til þess að hafin verði vinna við heildrænt deiliskipulag sem tekur til svæði M5 og afmarkast af Kirkjuvegi , Engjavegi og Eyravegi auk þess sem Heiðarvegur þverar svæðið. Innan svæðisins eru svæði sem henta til frekari uppbyggingar s.s. lóð Kirkjuvegar 8A og 8B auk þess sem tækifæri eru til nánari hönnunar og skipulags á opnu svæði sem er í miðju hverfisins. Samhliða verði skilgreindir byggingarreitir og byggingarheimildir á þegar byggðum lóðum innan hverfisins. Umsókn um heimild til deiliskipulagsgerðar á lóð Kirkjuvegur 8A og 8B er hafnað.
|
| Hafnað |
|
|
|
| 12. 2608151 - Lóðarumsókn - Hjalladæl 15-19 |
| Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir að úthluta lóðinni Hjalladæl 15 til Smiðsnes ehf. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 13. 2608093 - Víkurheið 13; Beiðni um úthlutun - afnot; Geymslusvæði |
| Skipulagsnefnd Árborgar tekur vel í framlagðar áætlanir og leggur til við bæjarráð að samþykkt verði að gera afnotasamning við umsækjanda um notkun lóðarinnar. |
| Samþykkt |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 14. 2606026F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 176 |
| Lagt fram til kynningar. |
| Til kynningar |
|
|
|
| 15. 2607009F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 177 |
| Lagt fram til kynningar. |
| Til kynningar |
|
|
|