Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 5

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
30.09.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar,
Sigurbjörg Guðmundsdóttir varamaður, D-lista,
Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Linda Björk Hilmarsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Matthías Bjarnason bæjarfulltrúi, B-lista,
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista,
Brynjar Þór Elvarsson varamaður, S-lista,
Margrét Björk Ólafsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir bæjarfulltrúi, C-lista,
Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2609109 - Tjald- og skógræktarsvæði AF6 SL1; óveruleg breyting á aðalskipulagi
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 5. Tjald- og skógræktarsvæði AF6 SL1; óveruleg breyting á
aðalskipulagi.
Samhliða afgreiðslu nýs deilsikipulags sem tekur til tjald- og
skógræktarsvæðis í landi Hellis er lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi sem tekur til tilfæringar á landnotkun innan svæðisins. Afþreyingar- og ferðamannasvæði sem liggur næst aðliggjandi íbúðarbyggð er breytt í skógræktarsvæði. Samsvarandi stærð skógræktarsvæðis á norðurhluta svæðisins er breytt í afþreyingar- og ferðamannasvæði.

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent HMS til samþykktar.

Til máls tekur Linda Björk Hilmarsdóttir, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna tjald- og skógræktarsvæðis AF6 og SL1 með vísan til 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gátlisti ASK_tjaldsvæði.pdf
115552-ASKBR-001-V01 Tjaldsvæði.pdf
2. 2606061 - Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 6. Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hásteinsvegar 30 eftir auglýsingu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma tillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Tillagan felur í sér að endurskoðun á forsendum uppbyggingar og notkun á lóðinni. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi lóðarinnar er heimilt að byggja 5 íbúða raðhús ásamt samsvarandi fjölda bílskúra, hámarks nýtingarhlutfall lóðar er skilgreint 0,28. Ekki eru gerðar breytingar á nýtingarhlutfalli lóðar eða fjölda bílastæða. Helstu breytingar sem gerðar eru á skilmálum deiliskipulagsins eru eftirfarandi:
- Heimild fyrir einnar hæðar raðhúsi með 5 íbúðum og 5 stakstæðum bílskúrum fellur niður og í stað verður heimilt að reisa 5 stakstæð tveggja hæða hús sem staðsett eru innan nýrra byggingarreita.
- Heimilt verður að vera með gististarfsemi í flokki I og II á lóðinni samkvæmt reglugerð nr. 1277/2016 í samræmi við aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036.
- Afstöðu og fyrirkomulagi bílastæða verður breytt, en bílastæðafjöldi helst óbreyttur.
- Settir eru fram skilmálar um lágmarks gólfkóta vegna sjávarflóðahættu og koma þeir fram í skilmálum og á skipulagsuppdrætti.
- Settir eru fram skilmálar um arkitektúr, efnisnotkun, lóðarhönnun og frágang innan lóðar.

Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir auglýsingu. Að mati nefndarinnar hefur verið brugðist við þeim umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðra gagna þar sem við á. Tengingum við Hásteinsveg er fækkað í takt við umsögn Vegagerðarinnar. Ekki er talin ástæða til að bregðast sérstaklega við ábendingu Heilbrigðiseftirlits þar sem lóðin tengist eftir sem áður fráveitukerfi þorpsins. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda eftir yfirferð HMS á tillögunni.

Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu í samræmi við framangreinda afgreiðslu skipulagsnefndar.

Til máls taka Linda Björk Hilmarsdóttir, D-lista og Heiðrún Kristmundsdóttir, C-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagða deiliskipulagsbreytingu fyrir Hásteinsveg 30 eftir auglýsingu. Deiliskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS.
H30_DSK-breyting-03_4.pdf
H30_DSK-breyting-04_4.pdf
H30_DSK-breyting-01_4.pdf
H30_DSK-breyting-02_4.pdf
Umsögn HSL 7.8.2026, Hásteinsvegur 30 dskr..pdf
Umsögn Vegagerðarinnar 22.7.2026, Hásteinsvegur 30 dskbr..pdf
3. 2503461 - Tjaldsvæði í Hellislandi - Deiliskipulag
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 7. Tjaldsvæði í Hellislandi - Deiliskipulag.
Lögð er fram uppfærð tillaga sem tekur til nýs deiliskipulags tjald- og skógræktarsvæðis í landi Hellis eftir kynningu. Samhliða er lögð fram tillaga að óverulegri breytingu aðalskipulags sem tekur til færslu á landnotkun innan svæðisins. Sú breyting er m.a. til að bregðast við ábendingum íbúa í grennd við svæðið þar sem skógræktarsvæði er skilgreint þar sem áður var gert ráð fyrir tjaldsvæði næst
íbúðabyggðinni. Auk hefðbundins tjaldsvæðis sunnan megin á svæðinu gerir skipulagið ráð fyrir að á norður hluta svæðisins verði blandað skógræktar- og útisvistarsvæði sem gæti nýst sem tjaldsvæði í tengslum við stærri viðburði í sveitarfélaginu, s.s. Landsmótum UMFÍ og sumarhátíðum á Selfossi. Á nútíma tjaldsvæðum eru flestir gestir í einhverskonar ferðavögnum. Því er í skipulagi almennings tjaldsvæðisins sýnd möguleg niðurröðun reita fyrir hverskyns vagna, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna o.s.frv og er tekið tillit til leiðbeininga HMS er varðar brunavarnir á tjaldsvæðum í því tilliti. Gert er ráð fyrir tveim þjónustuhúsum á svæðinu, sem þjóni sitthvoru hluta svæðum. Annarsvegar allt að 50m² þjónustuhús eða gámahýsi við viðburðartjaldsvæði og hins vegar allt að 200m² þjónustuhús við sjálft tjaldsvæðið. Þá er gert ráð fyrir svæði fyrir allt að 15 lítil gistihús að hámarki 20m² hvert.
Athugasemdir bárust við kynningu málsins frá íbúum og hefur verið brugðist við þeim athugasemdum inn í uppfærðri tillögu deiliskipulagsins þar sem við á s.s. með fyrrgreindri færslu á milli skógræktarsvæða og afþreyingar- og ferðamannasvæða.

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan gildandi aðalskipulags sveitarfélagsins og framlagðri óverulegri breytingu á aðalskipulagi sem tekur til tilfærslna á landnotkunarreitum innan skipulagssvæðisins.

Til máls tekur Linda Björk Hilmarsdóttir, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum til auglýsingar deiliskipulag tjaldsvæðis í Hellislandi með vísan til 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tjald- og skógræktarsvæði - 8.9.2026.pdf
4. 2603015 - Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 10. Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til svæðis I2 innan aðalskiplags Árborgar eftir auglýsingu. Skipulagsreiturinn nær til um 9,9 ha lands sem nær yfir lóð Sláturfélags Suðurlands og svæði fyrir nýjan aðkomuveg. Lóð sláturhúss og afurðastöðvar er 9,6 ha að stærð og er nú þegar byggð að hluta. Sláturfélag Suðurlands hyggst byggja nýtt sláturhús/afurðastöð fyrir stórgripaslátrun, vestan við núverandi byggingar. Núverandi byggingarmagn á iðnaðarlóðinni skv. fasteignaskrá er um 4.565 m2 og er gert ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000 m2 þar sem um 2000 - 2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Auk nýrra húsa er gert ráð fyrir endurnýjun á núverandi húsnæði sláturhússins.

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðar gagna og samantektar málsaðila á umsögnum sem bárust og viðbrögðum við þeim. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagt deiliskipulag fyrir Fossnes, Sláturfélag Suðurlands, eftir auglýsingu. Deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar, með vísan til 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
DSK_Slaturfelag-Fossnes-02_Uppdrattur.pdf
DSK_Slaturfelag_sudurlands-fossnes_greinargerd-03.pdf
Viðbrögð SS við umsögnum um deiliskipulag.pdf
Umsögn Minjastofnunar Íslands 10.6.2026, Fossnes dsk..pdf
Umsögn HSL 3.6.2026, Fossnes dsk..pdf
Umsögn Náttúrufræðistofnunar 15.6.2026, Fossnes dsk..pdf
Athugasemd HS veitur 9.6.2026, Fossnes dsk.pdf
Umsögn Vegagerðarinnar 18.5.2026, Fossnes deiliskipulag.pdf
5. 2601095 - Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 11. Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting.
Lögð fram tillaga er varðar breytingar á skilmálum aðalskipulags Árborgar 2020-2036, fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Skipulagssvæðið sem aðalskipulagsbreyting nær til er tæpir 6 ha. Megin breytingin fellst í að gerð er ítarlegri grein fyrir í samantektartöflu fyrir Mörk og Grænumörk, fjölgun íbúða á svæðinu, auk fjölda hæða. Samhliða breytingu aðalskipulags verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið.Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 22.6.2026 með fyrirvara um samþykki HMS. Lögð er fram afgreiðsla HMS þar sem gerðar eru athugasemdir við tillöguna og auglýsingu hennar. Samhliða eru lögð fram uppfærðum gögnum í takt við athugasemdir HMS.

Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn Árborgar að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Grænumarkar verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á grundvelli uppfærðra gagna og viðbragða vinnsluaðila skipulagsbreytingar sem lögð er fram samhliða samþykkt tillögunnar. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Samþykkt samhljóða.

Áheyrnarfulltrúi Ingunn Guðmundsdóttir áheyrarfulltrúi Viðreisnar leggur fram sérbókun:
Ég legg til að afgreiðslu tillögunnar verði frestað og henni vísað til endurskoðunar aðalskipulags sem þegar hefur verið ákveðið að fara í.
Þá verði fjallað um deiliskipulag á reitnum samhliða eins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leggur til í athugasemdum við tillöguna. Enn fremur er mikilvægt að samhliða umfjöllun um breytingartillöguna sé fjallað um aðliggjandi lóðir og umferðarskipulag þ.e. Heilbrigðisstofnunar, lögreglu, sjúkraflutninga, slökkviliðs og björgunarsveitar.

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Heiðrún Kristmundsdóttir, C-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista og Þórhildur Dröfn Ingavdottir, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Grænumarkar með vísan til 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
114201-01-GRG-001-V02 Grænamörk-TRAKK.pdf
Athugun Skipulagsstofnunar 23.7.2026, Mörk og Grænamörk askbr.pdf
Grænamörk ask - viðbrögð við umsögn HMS fyrir augl.pdf
6. 2606025 - Fundartími bæjarstjórnar og bæjarráðs kjörtímabilið 2026-2030
Bæjarstjóri leggur til að næsti fundur verði 21. október 2026, en fundur sem ætti að vera 7. október n.k. falli niður vegna fjármálaráðstefnu sveitarfélagsins.
Tillagan borin upp til atkævða og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Fundargerðir
7. 2609008F - Ungmennaráð - 6/2026
6. fundur haldinn 7. september.
Fundargerðin lögð fram.
8. 2609005F - Eigna- og veitunefnd - 3
3. fundur haldinn 8. september.
Til máls tekur Sveinn Ægir Birgisson, D-lista.

Fundargerðin lögð fram.
9. 2609004F - Fræðslu- og frístundanefnd - 2 - 2026
2. fundur haldinn 9. september.
Til máls taka Heiðrún Kristmundsdóttir, C-lista.

Fundargerðin lögð fram.
10. 2609013F - Bæjarráð - 11
11. fundur haldinn 17. september.
Fundargerðin lögð fram.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:38 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica