Lógókeppni fyrir Hinsegin viku í Árborgar
Við efnum til keppni um lógó fyrir Hinsegin viku Árborgar!
Hinsegin vika Árborgar er haldin ár hvert og hefur það markmið að efla fræðslu og skilning á hinsegin málefnum, auka sýnileika og stuðla að öryggi, jafnrétti og virðingu fyrir öll. Með vikunni viljum við skapa jákvætt umhverfi og samfélag þar sem fjölbreytileikanum er fagnað.
Við viljum skapa sterka og jákvæða ímynd fyrir vikuna, lógó sem endurspeglar fjölbreytileika, virðingu, sýnileika og samfélag. Nú leitum við til ykkar, íbúa Árborgar, nemenda og skapandi einstaklinga, til að taka þátt í að móta framtíðarútlit Hinsegin viku Árborgar.
Við erum að leita að:
Lógó sem tákn hinsegin vikunnar
Lógó sem hægt er að nota á plaköt, samfélagsmiðla, heimasíðu og annað kynningarefni
Mikilvægt að hafa í huga að ekki er heimilt að nota gervigreind (AI). Öll verk skulu vera unnin af þátttakandanum sjálfum.
Skil á lógó-i
Við munum taka við hugmyndum frá öllum þeim sem vilja taka þátt. Það er ekkert hámark á hve margar hugmyndir hver einstaklingur má senda inn. Skila þarf inn lógó-inu fyrir 10.mars 2026 gegnum forms Skil á lógó-i
Verðlaun
Sigurvegarinn fær vegleg verðlaun, viðurkenningu og lógóið verður notað sem opinbert merki Hinsegin viku Árborgar.
