71. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl. 16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2503078 - Erindisbréf samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Sveitarfélaginu Árborg
Velferðarnefnd samþykkti fyrir sitt leyti á fundi 6. mars 2025 erindisbréf samráðshóps um málefni fatlaðs og lagði til að við bæjarráð að hópurinn yrði stofnaður. Velferðarnefnd lagði enn fremur til að sveitarfélagið segði sig frá þátttöku í starfandi notendaráði á vegum Bergrisans bs. Á 121. fundi bæjarráðs sem haldinn var 21. mars 2025 lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja erindisbréf hópsins, að kjósa formann samráðshópsins og samþykkja að Sveitarfélagið Árborg segi sig frá þátttöku í starfandi notendaráði á vegum Bergrisans bs.
Fulltrúar í samráðshópnum eru:
Helga Lind Pálsdóttir D-lista, aðalmaður
Sveinn Ægir Birgisson D-lista, aðalmaður
Ellý Tómasdóttir B-lista, aðalmaður
Brynhildur Jónsdóttir D-lista, varamaður
Kjartan Björnsson D-lista, varamaður
Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista, varamaður
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja að Sveitarfélagið Árborg segi frá þátttöku í starfandi notendaráði á vegum Bergrisans bs.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja erindisbréf hópsins og kjósa formann samráðshópsins. - 2507008 - Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breyting svæði M10 (Tryggvagata)
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september 2025, liður 1. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breyting svæði M10 (Tryggvagata).
Lögð er fram uppfærð tillaga vegna óverulegrar breytingar á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, eftir athugasemdir innan afgreiðslu Skipulagsstofnunar dags. 21.8.2025. Tillagan var tekin fyrir á fundi skipulagsnefndar 9.7.2025 og í Bæjarráði 10.7.2025. Niðurstaða Bæjarráðs var auglýst í Lögbirtingablaði og Dagskránni ásamt heimasíðu Árborgar þann 17.7.2025. Skipulagsstofnun gat ekki fallist á að um óverulega breytingum væri að ræða þar sem tillagan gerði ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða var aukinn úr 20-40 í 80 íbúðir. Uppfærð tillaga gerir ráð fyrir að heimilt sé fyrir allt að 45 íbúðum í stað 20-40 íbúðir.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem óverulega breytingu á grundvelli framlagðs rökstuðnings. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi.
Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst á opinberum vettvangi og send að nýju til samþykktar hjá Skipulagsstofnun. - 2601204 - Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 58. fundi skipulagsnefndar frá 11. mars sl. liður 3. Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting.
Larsen hönnun leggur fram uppfærða tillögu breytinga á deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Jórvíkur I sem var frestað afgreiðslu á fundi nefndarinnar þann 25.2.2026. Markmið með deiliskipulagsbreytingu er að bæta nýtingu fjölbýlishúsalóða með fjölgun íbúða, stækkun á byggingareit, bilastæðum fækkað og hámarks vegg / mænishæð er hækkuð. Breytingar: Á fjölbýlishúsalóðum F2 er bílastæðum fækkað niður í 1 stæði á íbúð og hámarks vegg / mænishæð hækkar úr 8 m upp í 10 m. Á lóðunum Fossvík 1, 3 og 5 eru byggingareitir stækkaðir og íbúðum fjölgað í samræmi. Á lóðinni Nýja Jórvík 13, er íbúðum fjölgað. Að öðru leiti gilda eldri samþykktir skilmálar. Nýja Jórvík 13 fjölgar úr 12 íbúðum í 20. Fossvík 1 fjölgar úr 8 íbúðum í 12. Fossvík 3 fjölgar úr 8 íbúðum í 16. Fossvík 5 fjölgar úr 8 íbúðum í12. Fjölgun samtals úr 36 íbúðum í 62. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi. Jafnframt mælist nefndin til þess að breytingin verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum innan hverfisins. - 2603071 - Reglur um heimgreiðslur
Tillaga frá 163. fundi bæjarráðs frá 12. mars sl. liður Reglur um heimgreiðslur. Lagðar eru fram tillögur að reglum um heimgreiðslur til foreldra vegna dagvistunar barna, gjaldskrá og minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 9. mars sl. Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kemur inn á fundinn og fer yfir tillögur að nýjum reglum um heimgreiðslur til foreldra. Fram kemur að heimgreiðslurnar séu ætlaðar foreldrum barna á aldrinum 12-30 mánaða sem eru búsett í Svf. Árborg og ekki komin með pláss á leikskóla eða í öðru dagvistunarúrræði. Gert er ráð fyrir að reglurnar taki gildi frá og með 1. apríl 2026 og upphæð heimgreiðslu með hverju barni verði kr. 110.000- sem er greidd mánaðarlega eftir á í allt að 11 mánuði á ári, en ekki er greitt fyrir júlímánuð. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglur um heimgreiðslur og vísar áfram til afgreiðslu í bæjarstjórn Árborgar. Bæjarráð vísar málinu einnig til umsagnar í velferðarnefnd og fræðslu- og frístundanefnd sem fylgi með til umræðu og afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjaráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka vegna aukins fjármagns í heimgreiðslur á árinu 2026, að fjárhæð kr. 5.000.000,- til samþykktar. Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglur og gjaldskrá fyrir heimgreiðslur. - 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Kosið er í eftirfarandi í nefndir, stjórnir og til að sækja aðalfundi og skal kosning gilda út kjörtímabilið 2022-2026. Aðalfundur Byggðasafns Árnesinga, tólf fulltrúar og tólf til vara skv. samþykktum. Aðalfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga, tólf fulltrúar og tólf til vara skv. samþykktum og Listasafns Árnesinga, tólf fulltrúar og tólf til vara. - 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026
Lagt er til að næsti fundur bæjarstjórnar verði 22. apríl.
Fundargerðir - 2602021F - Eigna- og veitunefnd - 52
52. fundur haldinn 24. febrúar. - 2602007F - Skipulagsnefnd - 57
57. fundur haldinn 25. febrúar. - 2602026F - Fræðslu- og frístundanefnd - 26
26. fundur haldinn 25. febrúar. - 2602034F - Bæjarráð - 162
162. fundur haldinn 5. mars. - 2603008F - Bæjarráð - 163
163. fundur haldinn 12. mars. - 2603006F - Skipulagsnefnd - 58
58. fundur haldinn 12. mars. - 2603015F - Bæjarráð - 164
164. fundur haldinn 19. mars.
Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri

