41. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 12. júní 2024 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 1711099 - Samkomulag vegna bílastæða bak við Austurveg 4
Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á 39, fundi.
Með afsali sem undirritað var þann 3. maí 2021 afsalaði Sveitarfélagið Árborg til Árfoss ehf. lóðinni Austurvegur 4A - 3 og afsalaði Árfoss ehf. lóðinni Austurvegur 4A - 4 til Sveitarfélagsins Árborgar. Þá afsalaði Sveitarfélagið Árborg til Árfoss ehf. eignarhluta sínum í lóðinni Austurvegi 4 svæði 2 með nýrri afmörkun. Lóðin var þá afmörkuð þannig að lóðirnar Austurvegur 4A - 1 og Austurvegur 4A - 2 voru afmarkaðar innan Austurvegs 4 svæði 2 enda var fyrirhugað að Austurvegur 4A - 1 og Austurvegur 4A - 2 yrðu sameinaðar Austurvegi 4 svæði 2.
Þar sem afsalið þótti við þinglýsingu ekki kveða skýrlega á um það að lóðunum Austurvegur 4A - 1 og Austurvegur 4A - 2, væri afsalað til Árfoss ehf. þá var afsalinu ekki þinglýst sem eignarheimild á lóðirnar Austurveg 4A - 1 og Austurveg 4A - 2 og er afsal þetta því gefið út.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja afsalið. - 2406024 - Ábyrgð á láni til Brunavarna Árnessýslu
Ábyrgð Sveitarfélagsins Árborgar vegna lántöku Brunavarna Árnessýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 190.000.000 kr. - 2203180 - Reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkt verði að afnema vísitölutengingu viðmiðunarfjárhæða í 1. gr. reglna um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Sveitarfélaginu Árborg árið 2024. Tillagan er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun Árborgar fyrir árið 2024. - 2401306 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2024
Viðauki nr. 3 Lagt til til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 3. - 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Breyting á fulltrúum Á-lista á aðalfund Bergrisans bs. - 2302244 - Eyravegur 42 - 44. - Deiliskipulag verslunar- og þjónustu auk
íbúðabyggðar
Tillaga frá 30. fundi skipulagsnefndar, frá 5. júní, liður 2. Lögð er fram breytt deiliskipulagstillaga fyrir lóðirnar Eyraveg 42 - 44 á Selfossi. Tillagan hefur verið til meðferðar hjá Sveitarfélaginu Árborg, og var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar 29.11.2023. Tillagan var auglýst frá 20.12.2023 með athugasemdafresti til 31.1.2024.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Vegagerðin gerði athugasemd við tillöguna í umsögn Vegagerðarinnar dags. 9.1.2023, þar sem ekki var fallist á nýja aðkomu inn á lóð 44 við Eyraveg.
Edda Kristín Einarsdóttir f.h. Eik fasteignafélags, leggur nú fram breytta tillögu sem gerir ráð fyrir að, aðkoma að lóð 44 verði frá Fossvegi. Þá hefur uppstillingu byggingarklasa fyrir lóð 44 verið snúið við, þannig að opið svæði innan lóðar snúi að Eyravegi.
Svæðið er skilgreint í aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 sem miðsvæði, en er jafnframt skilgreint sem þróunarsvæði, þar sem skuli vera blanda af verslunar-, þjónustu- og íbúðarsvæði.
Samkvæmt orðalagi tillögunnar eru helstu markmið hennar að þétta núverandi byggð með nýtingu á lóðum sem nýttar hafa verið sem verslunar- og lagersvæði. Tillagan tekur til breytinga á núverandi notkun lóðanna 42 og 44 við Eyraveg.
Lóðirnar hafa í áranna rás verið nýttar undir starfsemi byggingarvöruverslunar. Í tillögunni er gert ráð fyrir að verslunarstarfsemi verði á lóð 42, og hluti núverandi bygginga verði rifinn og fjarlægður. Á lóð 44 er gert ráð fyrir að rísi á einum byggingarreit F1, íbúðarhúsnæði á 3 - 5 hæðum. Gert er ráð fyrir að á lóðinni verði rými fyrir allt að 65 - 75 íbúðir, með nýtingarhlutfall upp á 1,1.
Það er mat skipulagsnefndar, að breytt tillaga sé þess eðlis að nauðsynlegt sé að auglýsa hana að nýju. Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa nýja breytta tillögu að nýju. - 2312151 - Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar I. á ASK 2024
Tillaga frá 30. fundi skipulagsnefndar, frá 5. júní, liður 3. Lögð er fram tillaga að breytingum á gildandi Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036, til kynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingarnar hafa verið kynntar með skipulagslýsingu, þ.e. samantekt á þeim þáttum sem til stendur að gera breytingar á. Skipulagslýsing var auglýst og kynnt frá 28. febrúar 2024 til og með 26. mars 2024., auk þess sem óskað var eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila auk annarra. Gerðar eru nokkrar breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020 - 2036. Breytingarnar snúa einkum að þéttbýlinu á Selfossi en einnig eru breytingar á landbúnaðarsvæði og nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í dreifbýli.
Um er að ræða eftirtaldar breytingar á greinargerð og uppdráttum:
- Miðsvæðið M3 breytist í íbúðarbyggð. Heimilt er að vera með hverfisverslun á lóðum næst hringtorgi Eyrarvegar og Suðurhóla.
- Athafnasvæði fyrir utan á. Unnið er að deiliskipulagi athafnasvæðis AT2. Gerðar eru lítilsháttar breytingar á afmörkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF6 vegna þess og skógræktar- og landgræðslusvæðis SL1.
- Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ8 og þeim hluta samfélagsþjónustu S5 sem nær til leikskólans Glaðheima er breytt í miðsvæði.
- Iðnaðarsvæðinu I1 er að hluta til breytt í verslunar- og þjónustusvæði.
- Sett er inn iðnaðarsvæði I21 og I22 fyrir borholur hitaveitu fyrir utan á. Einnig iðnaðarsvæði I23 fyrir borholur hitaveitu á suðurbakka Ölfusár.
- Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ11 er breytt í athafnasvæði.
- Íbúðarbyggðinni ÍB27 er breytt til baka í athafnasvæði (AT5), eins og var í eldra skipulagi.
- Á hluta af opnu svæði OP1, norðan við Sunnulækjarskóla, er heimilt að útbúa aðstöðu fyrir skátana.
- Skilmálum fyrir miðsvæðið M5 er breytt og byggingar lækkaðar.
- Skilmálum fyrir miðsvæðið M6 er breytt og byggingar lækkaðar.
- Sýslumannstúninu er breytt úr íbúðarbyggð í opið svæði.
- Syðsta hluta Votmúla 1, Lóustaða 1 og Votmúla 3 er breytt úr landbúnaðarsvæði L2 í L3.
- Sett er inn nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Stóra-Hrauns og minnkar landbúnaðarsvæði samsvarandi.
- Settir eru skilmálar fyrir skuggavarp og vindvist.
- Endurskoðuð er afmörkun svæða sem vinna á rammahluta aðalskipulags fyrir. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 í samræmi við 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og tillagan verði kynnt, í samræmi við 2.mgr. 30. gr. sömu laga, og mælist til við Bæjarstjórn Árborgar að samþykkja breytingartillöguna til kynningar í samræmi við ofangreindar tilvísanir í skipulagslögum. - 2403017 - Arnberg - Olís - Deiliskipulag lóðar L162959
Tillaga frá 30. fundi skipulagsnefndar, frá 5. júní, liður 9.
Gunnar Örn Sigurðsson frá ASK arkitektum leggur fram deiliskipulagstillögu fyrir lóðina Arnberg L162959 á Selfossi. Starfsemi lóðarinnar tilheyrir að mestu leyti Olís, sem rekur verslun, sölu á eldsneyti og olíum auk þess sem rafhleðslustöð er innan lóðarinnar.
Deiliskipulagstillagan tekur til þeirra bygginga/viðbygginga og starfsemi innan lóðar, en er nú áformað að óska eftir leyfi til byggingar bílaþvottastöðvar sem verður staðsett nánast í sama grunnplani og núverandi þvottaplan austast í lóðinni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna. - 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundargerðir - 2405011F - Skipulagsnefnd - 29
29. fundur haldinn 22. maí. - 2405017F - Menningarnefnd - 6
6. fundur haldinn 21. maí. - 2405025F - Bæjarráð - 89
89. fundur haldinn 30. maí. - 2405033F - Bæjarráð - 90
90. fundur haldinn 6. júní.