62. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 17. september 2025 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
https://www.youtube.com/watch?v=ikTwl6-xcHk
Dagskrá
Almenn erindi
- 2502208 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Tillaga frá 140. fundi bæjarráðs frá 4. september, liður 3. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki nr. 5.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun
Sveitarfélagsins Árborgar 2025. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er
kr. 350.000.000,-. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 350.000.000,- og lækkar því rekstrarafgangur í A hluta og er áætlaður neikvæður um kr.444.931.000,- eftir að viðauki er samþykktur. Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 350.000.000,- og verður því rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð jákvæð um kr. 147.154.000,-. Viðaukanum er mætt með auknu útsvari. - 2509135 - Reglur um þjónustu frístundaklúbba í Sveitarfélaginu Árborg
Tillaga frá 22. fundi fræðslu- og frístundanefndar frá 10. september liður 9.
Fræðslu- og frístundanefnd staðfestir samhljóða reglur um þjónustu frístundaklúbba í Sveitarfélaginu Árborg og vísar áfram til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. Tillaga frá 141. fundi bæjarráð frá 11. september sl. liður 3. Reglur um þjónustu frístundaklúbba í Sveitarfélaginu Árborg. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja reglurnar fyrir sitt leyti og leggja til við bæjarstjórn að samþykkja þær.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þær.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar. - 2411160 - Deiliskipulag Jórvík 1, áfangi 2 og Björkurstykki 3
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september sl. liður 2. Deiliskipulag Jórvík 1, áfangi 2 og Björkurstykki 3.
Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að deiliskipulagi fyrir Jórvík 1. 2. áfanga (28,9 ha.) og Björkurstykki III (17,5 ha.). Tillagan var auglýst frá 22. maí - 3. júlí 2025. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Rarik, Selfossveitum og Vegagerðinni. Ábendingar eru settar fram í umsögn Náttúruverndarstofnunar sem snúa meðal annars að því að greining á fuglalífi og áhrifum framkvæmdarinnar á búsvæði fugla þyrfti að fara fram og að skýr stefna um verndun og endurheimt á líffræðilegum fjölbreytileika sé sett fram ásamt því að huga þurfi að tímabundnum áhrifum framkvæmdastigs og mótvægisaðgerðum.
Svæði 2. áfanga Jórvíkur liggur til suðurs í framhaldi af núverandi skipulagi í Jórvík I, og Björkurstykki III liggur milli nýrrar byggðar í Jórvík 1, og Björkurstykkis. Samanlagt er skipulagssvæðið um 46,4 ha. Með deiliskipulaginu er verið að skapa svæði til frekari uppbyggingar blandaðrar íbúðabyggðar og þjónustu í Árborg. Megin áhersla deiliskipulagsins er að afmarka lóðir og skilgreina byggingarreiti fyrir íbúðarbyggð ásamt því að setja skilmála fyrir uppbyggingu innan fyrirhugaðs íbúðarsvæðis í samræmi við lög og reglur. Áskipulagssvæðinu er gert ráð fyrir hæfilega þéttri byggð og hagkvæmri nýtingu lands. Íbúðarbyggðin er í meginatriðum lágreist með einnar hæðar sérbýlishúsum, tveggja hæða tví- og fjórbýlishúsum og allt að 6 hæða fjölbýlishúsum ásamt þjónustulóðum. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 1200 íbúðum. Gera má ráð fyrir að uppbygging svæðis muni taka 10-15 ár. Gert er ráð fyrir að áhersla verði á uppbyggingu í Björkurstykki III, í fyrri áfanga og Jórvík 1. áfanga 2, í þeim síðari. Aðkoma fyrir akandi umferð verður frá Suðurhólum, Hólastekk og að Jórvík 1. 2 áfanga í gegnum núverandi byggð í Jórvík I. Umagnir bárust við tillöguna á auglýsingatíma hennar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum og samantekt viðbragða og andsvara.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og framlagðrar samantektar umsagna og viðbragða. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. - 2503333 - Skátafélagið Fossbúar - Deiliskipulag - Félags- og útivistarsvæði
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar, frá 10. september sl. liður 3. Skátafélagið Fossbúar - Deiliskipulag - Félags- og útivistarsvæði.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til hluta opins svæðis OP1. Í deiliskipulaginu felst afmörkun útivistarsvæðis sem Skátafélagið Fossbúar munu hafa til afnota. Innan tillögunnar er afmarkað svæði þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu húsnæðis sem hýsir skátastarf í Árborg auk þess sem afmarkað er útivistarsvæði sem nýtist jafnt sem opið svæði fyrir almenning og starfsemi skátafélagsins. Markið tillögunnar er m.a. að nýta þá innviði sem svæðið hefur upp á að bjóða eins og bílastæði og gönguleiðir. Nýta þann gróður sem fyrir er og efla hann til muna með gróðursetningu nýrra plantna. Koma fyrir svæði sem nýtast má skólabörnum yfir veturinn til leikja og fræðslu. Koma fyrir litlum opnum húsum sem hýsa grillaðstöðu og fyrir útikennslu barna auk þess sem gert er ráð fyrir góðri tengingu við önnur opin svæði í næsta nágrenni.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við Bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða verði kynnt óveruleg breyting á aðalskipulagi Árborgar sem tekur til viðkomandi svæðis. - 2506399 - Tryggvagata 36 - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september sl. liður 4. Tryggvagata 36 - Deiliskipulagsbreyting.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til lóðar Tryggvagötu 36. Í breytingunni felst breytt notkun á svæðinu úr leikskóla í íbúðarhúsnæði. Skilgreindir eru byggingareitir, hæðir húsa, hámarksbyggingarmagn, svæði undir bílastæði á lóð og nýr göngustígur sem liggur með fram lóðinni. Lóðamörk eru óbreytt. Gert er ráð fyrir einu 3ja hæða íbúðarhúsi ásamt skýli fyrir hjóla- og sorpgeymslu á lóðinni. Ekki er gert ráð fyrir kjallara undir húsum. Þriðja hæð íbúðarhússins skal vera inndregin a.m.k. um 3 m á langhlið og 2 m á skammhliðar. Heildarfjöldi íbúða í húsinu geta orðið allt að 40. Heildarbyggingarmagn er að hámarki 3.000 m2 og nýtingarhlutfall er um 0,97.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn fyrir afgreiðslu bæjarstjórnar. Mælist nefndin til þess að aðliggjandi lóðarhöfum verði sérstaklega kynnt áformin. - 2509056 - Opin svæði OP1; Óveruleg breyting á aðalskipulagi; Skátasvæði
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september sl. liður 5. Opin svæði OP1; Óveruleg breyting á aðalskipulagi.
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytinga á aðalskipulagi sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036 sem tekur til OP1 opinna svæða. Í breytingunni felst að skilgreint er aukið byggingarmagn á svæði sem ætlað er sem aðstaða fyrir skátana. Samhliða er unnið að gerð deiliskipulags sem tekur til viðkomandi svæðis.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sem tekur til byggingarmagns á svæðis OP1. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst á opinberum vettvangi auk þess sem hún verði kynnt sérstaklega samhliða kynningu nýs deiliskipulags fyrir svæðið áður en tillagan verði send til samþykktar Skipulagsstofnunar. - 2410079 - Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september sl. liður 6. Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi, eftir auglýsingu. Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð. Gert er ráð fyrir byggingu á 3 hæða fjölbýlishúsi auk bílakjallara. Fjöldi íbúða allt að 21. Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 17 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt leiksvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif af 3 hæða húsi. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma tillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu hennar.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagna og samantektarathugasemda, umsagna og viðbragða. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. - 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026
Lagt er til að næsti fundur bæjarstjórar verði 15. október.
Fundargerðir - 2508015F - Eigna- og veitunefnd - 44
44. fundur haldinn 26. ágúst. - 2508024F - Bæjarráð - 140
140. fundur haldinn 4. september. - 2509002F - Ungmennaráð - 7/2025
7. fundur haldinn 1. september. - 2509006F - Bæjarráð - 141
141. fundur haldinn 11. september.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri