72. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl. 16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2510456 - Ársreikningur Árborgar 2025
Ársreikningur Árborgar 2025 lagður fram til fyrri umræðu. - 2511093 - Reglur um þjónustu frístundaheimila í Svf. Árborg
Tillaga frá 27. fundi fræðslu- og frístundanefndar frá 24. mars sl. liður 1. Reglur um þjónustu frístundaheimila í Svf. Árborg. Endurskoðaðar reglur um þjónustu frístundaheimila lagðar fram til staðfestingar. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fyrir sitt leyti reglur um þjónustu frístundaheimila í Árborg og vísar áfram til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. - 2511417 - Heildarendurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð
Tillaga frá 24. fundi velferðarnefndar frá 17. mars sl. liður 1. Heildarendurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð. Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. - 2603318 - Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu 2026-2031
Tillaga frá 166. fundi bæjarráðs frá 9. apríl sl. liður 6. Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu 2026-2031. Lögð er fram til samþykktar Brunaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00. Áætlunin gildir til febrúar 2031. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00 sem gildir til febrúar 2031 og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja áætlunina. - 2510393 - Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar
Tillaga frá 167. fundi bæjarráðs liður 1. Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar. Fulltrúar bæjarfulltrúa í hverfisráðum Sveitarfélagsins Árborgar. Bæjarráð fer yfir tillögu að fulltrúum úr bæjarstjórn sem myndu skipa hverfisráðin á Eyrarbakka, Stokkseyri og Sandvíkurhreppi. Tveir bæjarfulltrúar sitja í hverju ráði og er lagt til að Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista verði fulltrúar í hverfisráði Eyrarbakka, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista í hverfisráði Stokkseyrar og Kjartan Björnsson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista í hverfisráði Sandvíkurhrepps. Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna. - 2403338 - Ungmennaráð 2024 -2026
Breyting á fulltrúa BES í ungmennaráði. Lagt er til við bæjarstjórn að Óskar Atli Örvarsson verði fulltrúi BES í ungmennaráði í stað Kristrúnar Birtu Guðmundsdóttur. - 2601095 - Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting
Tillaga frá 59. fundi skipulagsnefndar frá 25. mars sl. liður 6. Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting. Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytingar á skilmálum fyrir íbúðarbyggð ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Gerð er breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggðina ÍB17. Heimilað er að fjölga íbúðum og þétta byggðina. Eftir breytingu verði eftirfarandi skilmálar í gildi er varða uppbyggingu innan svæðisins: Heimilt er að vera með byggingar á 1-4 hæðum og sambland af einbýlishúsum og fjölbýlishúsum. Á jarðhæð er heimilt að vera með íbúðir, verslun- og þjónustu og samfélagsþjónustu. Einkum starfsemi sem þjónar íbúum í nærumhverfi. Svæðið er ætlað fyrir 50 ára og eldri. Á lóðum við Heiðmörk og Þórsmörk er til framtíðar litið gert ráð fyrir íbúðum fyrir 50 ára og eldri. Ef byggingar eru 4 hæðir þá skal efsta hæð vera inndregin. Hliðar húsa sem eru lengri en 15 m skal brjóta upp með inn- eða útskoti, litavali eða á annan hátt. Heimilt er að vera með bílakjallara. Við útfærslu svæðis í deiliskipulagi skal miða við að auka sjálfbærni, bæta gæði umhverfisins með gróðri, leitast við að skapa skjólgóð svæði þar sem sólar nýtur og að aðkoma og aðgengi sé greitt. Ásamt því að skoða aðkomu, umferðarflæði fyrir alla og bílastæði. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til kynningar á grundvelli 30.gr. skipulagslaga nr.123/2010. - 2603240 - Dvergasteinar; Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 59. fundi skipulagsnefndar frá 25. mars. liður 8. Dvergasteinar; Deiliskipulagsbreyting. Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar er varðar Dvergasteina á Stokkseyri. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir heimild fyrir raðhús á lóð Dvergasteina 1 og 3 þar sem áður var gert ráð fyrir einbýlishúsum. Samhliða er gert ráð fyrir að gatan verði að botnlanga. Engar aðrar breytingar eru gerðar á byggingaskilmálum annarra lóða deiliskipulagsins. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi. Jafnframt mælist nefndin til þess að breytingin verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum við Dvergasteina. - 2603313 - Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Gámasvæði textabreyting
Tillaga frá 60. fundi skipulagsnefndar, frá 15. apríl sl. liður 1. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Gámasvæði textabreyting. Íslenska gámafélagið óskar eftir breytingu á greinargerð Aðalskipulags Árborgar 2020-2036, nánar tiltekið á ákvæði um reit I7 Endurvinnslusvæðis í töflu 32, kafla 4.2.8 Iðnaðarsvæði. Óskað er eftir að eftirfarandi texti verði felldur brott eða honum breytt: "Í gildi er deiliskipulag af hluta reitsins þar sem gert er ráð fyrir gámasvæði með móttöku efna til endurvinnslu og spilliefna. Sú starfsemi er víkjandi af svæðinu á skipulagstímabilinu og skal færast inn á svæði á Sandvíkurheiði". Óskað er eftir að orðalagi verði breytt á þann hátt að starfsemi sem felur í sér móttöku og flokkun úrgangs, þ.m.t. efna til endurvinnslu, geti verið áfram heimil á reit I7 og teljist því ekki sem víkjandi starfsemi. Skipulagsnefnd Árborgar gerir ekki athugasemdir við framlagða beiðni og vísar málinu til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn. Samhliða viðkomandi breytingu á aðalskipulagi telur nefndin þörf á að unnin verði breyting á deiliskipulagi svæðisins þar sem starfsemi svæðisins og heimildir verði skilgreindar með ítarlegri hætti í takt við rekstur þess til framtíðar. - 2603015 - Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag
Tillaga frá 60. fundi skipulagsnefndar frá 15. apríl sl. liður 3. Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag. Lögð er fram uppfærð tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til svæðis I2 innan aðalskiplags Árborgar. Skipulagsreiturinn nær til um 9,9 ha. lands sem nær yfir lóð Sláturfélags Suðurlands og svæði fyrir nýjan aðkomuveg. Lóð sláturhúss og afurðastöðvar er 9,6 ha. að stærð og er nú þegar byggð að hluta. Sláturfélag Suðurlands hyggst byggja nýtt sláturhús/afurðastöð fyrir stórgripaslátrun, vestan við núverandi byggingar. Núverandi byggingarmagn á iðnaðarlóðinni skv. fasteignaskrá er um 4.565m2 og er gert ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000m2 þar sem um 2000 - 2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Auk nýrra húsa er gert ráð fyrir endurnýjun á núverandi húsnæði sláturhússins.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. - 2604081 - Litla Sandvík; Deiliskipulagstillaga
Tillaga frá 60. fundi skipulagsnefndar frá 15. apríl sl. liður 5. Litla Sandvík; Deiliskipulagstillaga.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags tekur til hluta úr landi Litlu Sandvíkur, landi 1. (L211951), sem staðsett er í dreifbýli í Sveitafélaginu Árborg. Markmið skipulagsins er að gera ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, skemmu og smáhýsa ásamt nauðsynlegum innviðum. Skipulagssvæðið nær til um 48.000 m², sem er um þriðjungur af heildarstærð jarðarinnar. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Fundargerðir
12. 2603003F - Velferðarnefnd - 2424. fundur haldinn 17. mars.
13. 2603027F - Bæjarráð - 165
165. fundur haldinn 26. mars.
14. 2603023F - Umhverfisnefnd - 26
26. fundur haldinn 24. mars.
15. 2603022F - Eigna- og veitunefnd - 53
53. fundur haldinn 24. mars.
16. 2603026F - Fræðslu- og frístundanefnd - 27
27. fundur haldinn 24. mars.
17. 2603014F - Skipulagsnefnd - 59
59. fundur haldinn 25. mars.
18. 2603035F - Bæjarráð - 166
166. fundur haldinn 9. apríl.
19. 2604009F - Bæjarráð - 167
167. fundur haldinn 16. apríl.
Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri

