Auglýst eftir húsnæði undir starfsemi á vegum Svf. Árborgar
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir upplýsingum um hentugt húsnæði til leigu eða kaups fyrir frístundastarfsemi og eftir atvikum hluta af starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs.
Leitað er eftir húsnæði með gott opið rými, sem rúmar m.a. að lágmarki tvo 200 m2 sali. Sveitarfélagið leggur upp með tvo valkosti:
Leiga eða kaup á um 500-600m2 húsnæði undir frístundastarfsemi,
Kaup á um 1.200m2 húsnæði sem gæti hentað bæði undir frístundastarfsemi og hluta af starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs
Rætt verður við þá aðila sem senda inn upplýsingar eða óskuldbindandi tilboð um húsnæði svo sveitarfélagið geti aflað nánari upplýsinga og metið valkostina á grundvelli eftirfarandi þátta:
kostnaðar við leigu eða kaup,
afhendingartíma, sem þarf að vera sem fyrst,
staðsetningar með hliðsjón af aðgengi fatlaðra, hjólandi og gangandi vegfarenda, bílastæðum og frístundaaksturs og almenningssamgangna,
nálægð við íbúabyggð,
könnun sveitarfélagsins á áætluðum framkvæmdakostnaði vegna aðlögunar húsnæðisins, og annarra atriða sem kunna að skipta máli fyrir fyrirhugaða starfsemi
Hægt er að senda inn upplýsingar eða óskuldbindandi tilboð vegna mögulegs húsnæðis á netfangið: mannvirkja.umhverfissvid@arborg.is eigi síðar en kl. 16:00 föstudaginn 19. júní 2026.
Sveitarfélagið metur allar innsendar upplýsingar á grundvelli framangreindra þátta og áskilur sér rétt il að hafna öllum erindum eða tilboðum, í heild eða að hluta.
Auglýsing þessi felur ekki í sér skuldbindingu af hálfu sveitarfélagsins til að taka tilboði, hefja samningaviðræður eða ganga til samninga.


