Framkvæmdir við Austurhóla við Langholt | 2. - 3. júní
HS Veitur munu leggja lögn yfir Austurhóla vegna styrkingar á rafveitukerfi norðan við Austurhóla. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin taki 2 daga og verður þrengt að umferð á meðan í eina akgrein.
Við þökkum veittan skilning á meðan á framkvæmdum stendur.
Þjónustumiðstöð Árborgar

