Framkvæmdir við hraðahindrun í Nauthaga | Tímabundin lokun
Mánudaginn 26. október hefjast framkvæmdir við gerð hraðahindrunar í Nauthaga. Vegna framkvæmdanna verður Nauthagi lokaður tímabundið við Laufhaga og Reyrhaga á meðan unnið er að verkinu.
Íbúum og öðrum vegfarendum er bent á að hjáleið verður um Gagnheiði á meðan lokunin stendur yfir.
Við biðjum vegfarendur um að sýna tillitssemi, virða merkingar og fara varlega á meðan framkvæmdum stendur.
Við þökkum íbúum fyrir sýndan skilning og þolinmæði.
Þjónustumiðstöð Árborgar


