Kynning til íbúa Árborgar | Fyrirhuguð felling tveggja grenitrjáa við Sundhöll Selfoss
Sveitarfélagið Árborg hyggst á næstu vikum fella tvö grenitré sem standa næst rennibrautinni á sundlaugarsvæði Sundhallar Selfoss.
Ákvörðunin hefur verið tekin að vel ígrunduðu máli og að undangengnu mati á áhrifum trjánna á tæknibúnað sundlaugarinnar. Við gerum okkur grein fyrir að tré á svæðinu hafa um árabil verið hluti af ásýnd sundlaugargarðsins og að mörgum þykir vænt um þau.
Markmið aðgerðanna er að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur sundlaugarinnar til framtíðar.
Sundhöll Selfoss er búin fullkomnum vatnshreinsi- og klórframleiðslubúnaði sem gegnir lykilhlutverki við að tryggja hreinlæti, öryggi gesta og lögbundin gæði sundlaugavatns. Búnaðurinn er viðkvæmur og verðmætur og því mikilvægt að draga úr öllum þáttum sem geta haft neikvæð áhrif á rekstur hans.
Grenitrén við rennibrautina hafa ítrekað valdið því að greninálar, könglar og annað lífrænt efni berst í vatnskerfi sundlaugarinnar. Þrátt fyrir sérstakar varnir og síubúnað sem komið hefur verið fyrir til að vernda kerfið safnast greninálar reglulega í síur og hreinsibúnað. Það eykur viðhaldsþörf, hækkar rekstrarkostnað og eykur hættu á bilunum í mikilvægum kerfum sundlaugarinnar.
Faglegt mat sérfræðinga í vatnshreinsikerfum bendir jafnframt til þess að grenitré séu sérstaklega óheppileg í nánasta nágrenni slíkra kerfa, þar sem efni frá trjánum getur haft áhrif á virkni hreinsikerfa, sandsía og klórframleiðslu.
Með fellingu trjánna verður hægt að:
- Vernda vatnshreinsi- og klórframleiðslubúnað sundlaugarinnar.
- Draga úr hættu á kostnaðarsömum bilunum og rekstrartruflunum.
- Minnka álag á hreinsikerfi og annan tæknibúnað.
- Lækka viðhaldskostnað til framtíðar.
- Tryggja stöðugri og öruggari þjónustu fyrir gesti sundlaugarinnar.
- Vernda verðmæta fjárfestingu sveitarfélagsins í tæknibúnaði sem nemur tugum milljóna króna.
Mikilvægt er að undirstrika að hér er ekki um að ræða almenna fækkun trjáa á svæðinu heldur markvissa aðgerð vegna tveggja trjáa sem hafa bein áhrif á rekstur og búnað sundlaugarinnar. Jafnframt verður skoðað hvort unnt sé að nýta trén áfram í þágu samfélagsins, til dæmis sem jólatré á opinberum svæðum innan sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Árborg leggur áherslu á að vel sé gengið um gróður og umhverfi sveitarfélagsins. Í þessu tilviki vegur þó þungt að tryggja öruggan rekstur sundlaugarinnar, vernda mikilvægar eignir sveitarfélagsins og tryggja áfram góða þjónustu við íbúa og gesti.


