Nýtt saunasvæði í Sundhöll Selfoss
Föstudaginn 15. maí kl. 13:00 verður nýtt og glæsilegt saunasvæði formlega opnað í Sundhöll Selfoss. Við bjóðum gesti hjartanlega velkomna til að fagna opnuninni með okkur og kynnast nýrri, bættri aðstöðu sem hönnuð er með þægindi, vellíðan og slökun að leiðarljósi.
Saunasvæðið er frábær viðbót við þjónustu sundhallarinnar og World Class og mun án efa auka upplifun gesta.Við hlökkum til að sjá ykkur.
Sundhöll Selfoss
