Opnun í Sundhöll Selfoss | Laugardagur 30. maí
Sundhöll Selfoss opnar aftur á morgun, laugardaginn, eftir viðhald og ítarleg þrif.Við viljum þó vekja athygli á því að eftirfarandi svæði verða ekki tilbúin til notkunar á morgun:
- Norður- og suðurpottar
- Útilaug
- Gamla innilaugin
Gert er ráð fyrir að útilaug og gamla innilaugin verði komin í notkun á sunnudag. Norður- og suðurpottar verða hins vegar áfram lokaðir tímabundið.
Við þökkum kærlega fyrir þolinmæðina og hlökkum til að taka á móti ykkur aftur.
