Plöntuskiptadagur á Bókasafninu
Gefum og þiggjum. Mætum á Bókasafnið, njótum samvista og skiptumst á plöntum. Allskonar er velkomið, blóm/afleggjara, kryddjurtir, grænmeti og hvað eina sem hægt er að rækta sér til gagns og gleði.
Svo erum við líka með lítinn fræbanka þar sem hægt er að ná sér í allskonar fræ, nú eða leggja inn fræ. Öllum velkomið að taka þátt í "grænu gleðinni" með okkur, hlökkum til að sjá ykkur.

Bókasafn Árborgar Selfossi

