Sérstuðningur fyrir ungmenni fædd 2004-2007
Sveitarfélagið Árborg býður upp á sérstuðning fyrir ungmenni, fædd 2004 til 2007 með lögheimili í Árborg sem hafa skilgreindar fatlanir og þurfa fullan stuðning í daglegu lífi.
Stuðningurinn verður veittur á tímabilinu 27. maí til 26. júlí 2024 og verður veittur af starfsfólki frístundarþjónustu. Sótt er um stuðninginn í gegnum netfangið sersumar@arborg.is
Sækja þarf um fyrir 25.03.2024
Í umsókninni þarf að koma fram ástæða umsóknar, staðfesting á fötlun og hvaða tímabili óskað er eftir.
Skilyrði fyrir þjónustu er að ungmennið þurfi stöðugt eftirlit, geti ekki nýtt sér hópastarf eða önnur sumartilboð, flóknar félagslegar aðstæður og fötlunargreining.