Stóri plokkdagurinn 2026
Stóri plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 26. apríl næstkomandi.

Stóri plokkdagurinn er árlegur viðburður sem er skipulagður af félagsskapnum Plokk á Íslandi í samstarfi við Rótarýhreyfinguna á Íslandi.
Ruslapokar verða aðgengilegir víða í sveitarfélaginu, auk þess sem fólk getur losað sig við afrakstur plokksins í tunnur á sömu stöðum. Tunnurnar verða fjarlægðar mánudaginn 27. apríl.
Helgina 24. - 26. apríl 2026 verður unnt að nálgast glæra plastpoka til ruslatínslu og losa sig við afraksturinn í ruslatunnur að tínslu lokinni á eftirfarandi stöðum:
Eyrarbakki
- Við bryggjuna.
Stokkseyri
- Skálinn, Hásteinsvegur 2
- Leikskólinn Strandheimar / Æskukot, Blómsturvellir 2
Selfoss
- Sunnan við Ráðhús Árborgar, Austurvegur 2
- Sunnan við Krambúðina (grænt svæði við Fossheiði)
- Við Stekkjaskóla
- Fossnes / Bjarg við Ölfusá
- Leikskólinn Goðheimar, Engjaland 21
- Leikskólinn Hulduheimar, Erlurimi 1
- Leikskólinn Jötunheimar, Norðurhólum 3
- Leikskólinn Álfheimar, Sólvöllum 6
- Leikskólinn Árbær, Fossvegi 1
Sveitarfélagið Árborg styður alla íbúa unga sem aldna í því að snyrta umhverfi sitt nær og fjær!
