Sveitarfélagið Árborg opnar bókhaldið
Sveitarfélagið Árborg hefur nú opnað bókhald sitt á heimasíðu sveitarfélagsins fyrir íbúa og aðra áhugasama.
Markmiðið er að fjárhagsupplýsingar sveitarfélagsins séu aðgengileg öllum með einföldum hætti
Starfsmenn sveitarfélagsins hafa unnið að því koma fjárhagsupplýsingum sveitarfélagsins inn í hið svokallaða “opna bókhald” sem er nú orðið aðgengilegt á sérstöku svæði inn á heimasíðu Árborgar. Upplýsingarnar eru settar fram í notendavænu viðmóti og því þarf ekki sérstaka fjármálaþekkingu til að kynna sér fjárhagsstöðu einstakra málaflokka eða deilda sveitarfélagsins.
Hlekkur á “Opið bókhald Árborgar"
“Það er ánægjulegt skref inn í framtíðina að íbúar og aðrir áhugasamir geti nú með einföldum hætti séð helstu fjárhagsupplýsingar sveitarfélagsins hér á heimasíðunni” segir Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri
Opna bókhaldið skiptist í tekju- og gjaldagreiningu og er hægt að skoða upplýsingarnar eftir tegund, málaflokkum og deildum. Einnig er hægt að bera saman milli mánaða og ára. Sem dæmi er hægt að velja “laun og launatengd gjöld” og sjá skiptingu niður á málaflokka og deildir.
Allar upplýsingar uppfærast sjálfkrafa úr bókhaldskerfi sveitarfélagsins og sýna stöðuna m.v. bókuð gögn hverju sinni.
“Við finnum fyrir auknum áhuga íbúa á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og með því að opna bókhaldið með þessum hætti eiga allir möguleika á því að kynna sér stöðuna á sama stað. Gagnsæi í meðferð fjármuna sveitarfélagsins er mikilvæg og veitir bæði bæjarstjórn og stjórnsýslunni jákvætt aðhald” segir Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri.