Tilkynning | Appelsínugul viðvörun og akstur 26. mars
Akstur fellur niður utan Selfoss á morgun vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar.
Vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar í fyrramálið fellur eftirfarandi akstur niður:
- Dreifbýlisakstur fyrir grunnskóla Árborgar um morguninn
- Akstur fyrir Barnaskólann á Stokkeyri og Eyrarbakka
- Strætóferðir Árborgarstrætó fram að hádegi, eftir það verður staðan tekin aftur
- Ferðaþjónusta Fatlaðra – Ekki verður farið út fyrir Selfoss
Athugið að tafir geta orðið á ferðum í Ferðaþjónustu fatlaðra ef færð innanbæjar verður slæm.
Flotastjóri mun taka stöðuna fyrir hádegi á morgun vegna aksturs eftir hádegi.
