Tilkynning frá Selfossveitum | Spörum heita vatnið
Nú er kalt í veðri og útlit fyrir að svo verði næstu daga. Við viljum því hvetja alla til að fara vel með heita vatnið og fara eins sparlega með það og mögulegt er. Vatnsstaða heita vatnsins er lakari nú vegna þurrkatíðar sem hefur verið undanfarið.
Fólk getur sparað heitt vatn og þar með kyndikostnað sinn með því að gæta að því að gluggar séu ekki opnir og útidyr ekki látnar standa opnar lengur en þörf er á.
Þá skiptir einnig máli stillingar ofna, að óþarflega heitt vatn renni ekki frá þeim og að ofnarnir séu ekki byrgðir, til dæmis með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum.Þá eru heitir pottar við heimili talsvert þurftafrekir á vatn og gott að hafa í huga að fara sparlega með neysluvatn eins og við uppvask og böð (sturtur, baðkör). Einnig viljum við benda á að vegna tíðafars er óþarft að viðhalda kyndingu á snjóbræðslum og biðjum við fólk að huga að stillingum þeirra kerfa.
Með bestu kveðju,
Selfossveitur

