Tilkynning | Gotta rennibraut lokuð tímabundið
Vegna óhappa sem hafa átt sér stað í Gotta rennibrautinni í Sundhöll Selfoss, þar sem börn hafa slasast, hefur verið tekin sú ákvörðun að loka rennibrautinni tímabundið.
Rennibrautin verður lokuð um óákveðinn tíma á meðan unnið er að því að fara yfir öryggismál og leita lausna til að tryggja örugga notkun hennar í framtíðinni.
Við leggjum ríka áherslu á öryggi gesta okkar og þökkum fyrir skilning og þolinmæði á meðan unnið er að úrbótum.
Með von um skilning,
Starfsfólk Sundlauganna


