Tilkynning | Lokun í Sundlaug Stokkseyrar
Vegna fyrirhugaðra framkvæmda hjá Selfossveitum við endurnýjun hitaveitu á Eyrarbakkavegi verður heitavatnslaust á Stokkseyri miðvikudaginn 16. september frá kl. 09:00 og fram eftir degi.
Af þeim sökum verður Sundlaug Stokkseyrar lokuð á meðan á vatnsskerðingunni stendur.
Við biðjum gesti okkar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.
Sundlaugar Árborgar


