Tilkynning | Tímabundin lokun sundlauga í Árborg
Vegna aukins kulda og þurrkatíðar er vatnsstaða heita vatnsins tímabundið lakari og því truflast rekstur sundlauga sveitarfélagsins næstu daga. Allar sundlaugar í Árborg verða lokaðar fram yfir helgi, eða þar til tryggt hefur verið að nægt heitt vatn standi til boða fyrir örugga og fullnægjandi starfsemi.
World Class mun þó halda áfram að vera opið.
Frekar verður upplýst um framvindu mála um leið og nýjar upplýsingar liggja fyrir.Við biðjum gesti og íbúa velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Með vinsemd,
Starfsfólk sundlauganna.

