Tilkynning | Tímabundin lokun Álfsstéttar
Vegna framkvæmda við gerð hraðahindrunar verður Álfstétt á Eyrarbakka lokuð fyrir umferð frá og með miðvikudeginum 4. nóvember til og með föstudeginum 6. nóvember.
Á meðan lokunin stendur yfir verður hjáleið um Túngötu og Eyrargötu og eru vegfarendur hvattir til að nýta þær leiðir.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi, virða merkingar og fara varlega í nágrenni framkvæmdasvæðisins.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum íbúum fyrir sýndan skilning og þolinmæði.

Þjónustumiðstöð Árborgar

