Tilkynning um þungaflutninga vegna nýrrar Ölfusárbrúar
Tilkynnt er að þungaflutningar vegna flutnings á stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar hefjast í dag, 8. apríl 2026, og munu standa yfir til og með 15. apríl 2026.
Flutningarnir fela í sér umfangsmikinn akstur stórra og þungra eininga frá Þorlákshöfn að verkstað. Gert er ráð fyrir einni ferð á kvöldi, en minni einingar verða fluttar yfir daginn.
Áætlaður ferðatími frá Þorlákshöfn að Selfossi er á bilinu kl. 20:00–24:00.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát á umræddri leið meðan á flutningum stendur og virða merkingar og leiðbeiningar starfsmanna.
Áætlaðir flutningadagar að kvöld- og næturlagi:
· Miðvikudagur 8. apríl
· Fimmtudagur 9. apríl
· Mánudagur 13. apríl
· Þriðjudagur 14. apríl
· Miðvikudagur 15. apríl
Leið flutninga:
· Höfnin í Þorlákshöfn
· Egilsbraut
· Óseyrarbraut
· Hafnarvegur (Þorlákshöfn)
· Þorlákshafnarvegur
· Eyrarbakkavegur
· Óseyrarbrú
· Eyrarbakkavegur
· Hólastekkur
· Suðurhólar
· Gaulverjabæjarvegur
· Verkstaður (innkeyrsla frá hringtorgi Gaulverjabæjarvegar / Hringvegar (1))
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem flutningarnir kunna að valda. Almenningur er hvattur til að skipuleggja ferðir sínar með hliðsjón af framangreindu.
