Tilkynning vegna malbiksframkvæmda
Í dag er unnið að malbikun á stígum og lagfæringu á götum í Heimahaga og Úthaga á Selfossi ásamt því að malbikaður verður stígur meðfram Álfsstétt á Eyrarbakka.
Íbúar eru beðnir um að taka tillit til verktaka á meðan á framkvæmdum stendur þar sem unnið er við þröngar aðstæður.
Þjónustumiðstöð Árborgar

