Vetrarþjónusta sveitarfélagsins biðlar til íbúa
Kæru íbúar nú er vetrarþjónusta sveitarfélagsins komin á fullt við að hreinsa stofnbrautir og göngustíga.
Til að hreinsunarstarf gangi sem best biðlum við til íbúa að hreinsa þann gróður sem teygir sig yfir brautir og stíga, klippa og kvista upp sverar greinar svo hægt sé að moka gangstéttar við lóðir með góðu móti.
Bestu vetrarkveðjur frá starfsfólki þjónustumiðstöðvar Árborgar, Austurvegi 67.