Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Æskuminningar við Ölfusá - söguganga með Björgvini Þ. Valdimarssyni | Frumsýning á stuttmynd um Ölfusá

  • 25.10.2026, Selfoss

Björgvin Þ. Valdimarsson tónskáld og kórstjóri býður til sögugöngu sunnudaginn 24. október kl. 14:00 í tilefni frumsýningar á myndbandi eftir Roar Aagestad sem nefnist “Æskuminningar við Ölfusá” og er unnið út frá samnefndu hljómsveitarverki Björgvins.

Safnast verður saman við æskuheimili Björgvins, Eyrarveg 12, kl. 14:00. Þar mun hann fjalla um sögu hússins, íbúa þess og nágrenni og þaðan verður gengið að Smáratúni 1, en þar stóð hús Jóns Konráðssonar og mun Björgvin einnig segja frá kynnum sínum af honum.

Síðan verður gengið að Tryggvaskála þar sem myndbandið eftir Roar Aagestad verður frumsýnt. “Æskuminningar við Ölfusá” var upphafsverk á afmælistónleikum Björgvins sem haldnir voru í Íþróttahúsinu Iðu í maí sl.

Sögusvið myndbandsins, sem er 9 mínútna langt er æskuheimili Björgvins, Ölfusá og umhverfi hennar. Í lokin verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar.  


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

22.10.2026 - 24.10.2026 Langhúsið Menningarmiðstöð Langhúsið (Gamla kartöflugeymslan á Selfossi) | Opið hús

Það verður opið hús í menningarmiðstöðinni Langhúsið við Jórutún(áður Ártún), þar sem við ætlum að kynna húsið, sögu þess og möguleika á viðburðum i framtíðinni.

Sjá nánar
 

24.10.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Hrekkjavökuföndur með Sigurjóni | Bókasafn Árborgar Selfossi

Laugardaginn 24. október frá kl. 11-13. Öll börn og forráðamenn velkomin.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica