Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Allir geta teiknað | Nýtt teikninámskeið fyrir byrjendur

  • 16.9.2023, 10:00 - 12:15, Skrúfan
  • 23.9.2023, 10:00 - 12:15, Skrúfan
  • 30.9.2023, 10:00 - 12:15, Skrúfan
  • 7.10.2023, 10:00 - 12:15, Skrúfan

Guðrún Arndís Tryggvadóttir myndlistarmaður hefur skipulagt hraðnámskeið í teikningu í Skrúfunni - grósku og sköpunarmiðstöð á Eyrarbakka.

Guðrún um námskeiðið

Mín reynsla er sú að hægt sé að leiðbeina þannig að allir geti yfirstigið hræðslu sem varð til einhverntíma á ævinni um að „kunna ekki að teikna“. En það hafa ekki allir mikinn tíma til að sækja námskeið langt í burtu en langar samt að tileinka sér ákveðna færni. 

Hraðnámskeiðið er fyrir byrjendur og alla þá sem vilja læra að njóta þess að teikna

Að teikna er ekki bara list heldur aðferð til að rannsaka og leysa úr læðingi. Teikning er ein af grunnþörfum manneskjunnar, beinasta leiðin frá huga til handar. Teikning er tjáningarmiðill sem við höfum öll þörf fyrir og getum lærst svo mikið af, bæði um okkur sjálf og um heiminn í kringum okkur. 

Hraðnámskeiðið er í fjórum hlutum og snýst um að ná tökum á formum og hlutföllum, að geta teiknað fólk leikandi, að plata augað og gefa rými til kynna auk þess að þróa eigin hugmyndir. 

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Skrúfuna á Eyrarbakka á fjórum laugardagsmorgnum frá kl. 10:00 - 12:15

  • Form og hlutföll - grunnurinn fyrir teiknarann
  • Portrett - teiknum persónur leikandi
  • Fjarvídd og rými - göbbum augað
  • Innsýn - teiknum eigin hugmyndir

Fyrsta námskeiðið byrjar þann 16. september og heldur síðan áfram þar til í byrjun nóvember. Hvert námskeið kostar tíu þúsund krónur og er allt efni innifalið. Hægt er að taka þátt í einu eða öllum fjórum námskeiðum.

Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún í síma 863 5490 eða á netfanginu gudrun@tryggvadottir.com.


Viðburðadagatal

2.3.2024 - 25.8.2024 Listasafn Árnesinga Listasafn Árnesinga | Fjórar sýningar

Fjórar sýningar frá 02. mars til og með 25. ágúst.
Loftnet | Hamflettur | Kaþarsis | Draumur móður minnar

Sjá nánar
 

16.7.2024 - 16.9.2024 Listagjáin Kristjana sýnir í Listagjánni

Kristjana Gunnarsdóttir hefur opnað sýningu í Listagjánni á Selfossi. Sýningin er opin á opnunartíma Bókasafnsins og stendur til 16. september. 

Sjá nánar
 

27.7.2024 10:00 - 16:00 Sumarmarkaður á Selfossi 2024

Í sumar, alla laugardaga, verður haldinn útimarkaður í Tryggvagarði á Selfossi frá kl. 10:00 til 16:00.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica