Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fischersetur opið í tilefni af Menningarmánuðinum október

  • 17.10.2026, Fischersetrið á Selfossi

Sérstök opnun verður og ókeypis inn í Fischersetri fyrir íbúa laugardaginn 17. október sem hluti af Listaflakki í Árborg og Menningarmánuði. Opið verður milli klukkan 13:00 og 16:00. 

Fischersetur er safn um skákmeistarann Robert Fischer, þar sem saga hans er sögð ásamt myndum og ber þar hæst heimsmeistaraeinvígið í skák 1972, sem haldið var í Reykjavík.

Í Fischersetri er Skákfélag Selfoss og nágrennis með aðstöðu þar sem skákáhugafólk getur teflt, lært og aflað sér ýmiss fróðleiks um skáklistina.

Verið öll hjartanlega velkomin í heimsókn 17.október í Fischersetrið!


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 
Red-Blue-and-Orange-Modern-Art-Fest-Poster-30-x-20-cm-

17.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Listaflakk um Árborg

Opnar vinnustofur listamanna í tilefni af Menningarmánuðinum október

Sjá nánar
 

17.10.2026 Selfoss EM Heima Gallerí - opin vinnustofa

Í tilefni af Listaflakki um Árborg opna Eggert & Maja vinnustofu sína í EM heima gallerí frá kl. 13 - 18.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica