Fræðsludagur | Málefni eldri borgara
Velferðarþjónusta Árborgar í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands býður eldri borgurum og áhugasömum til fræðslustundar um málefni eldri borgara í Árborg.
Þriðjudaginn 28. nóvember heldur velferðarþjónusta sveitarfélagsins fræðsludag í Grænumörk 5, Selfossi.
Dagskrá
- Iðja, heilsa og umhverfi eftir starfslok, fræðsluerindi | Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, frá Heimastyrk
- Heilabilanir, erindi | Guðný Stella Guðnadóttir, öldrunarlæknir við HSu
- Velferðarþjónusta Árborgar, kynning | Þjónustuaðilar kynna starfsemi sína
- Heilsa og færnimat, erindi | Heimahjúkrun frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands
- Kynning á heimahjúkrun | Margrét Björk Ólafsdóttir og Anna Margrét Magnúsdóttir
- Kynningar frá þjónustutengdum fyrirtækjum
Eldri borgarar í Árborg eru heiðursgestir á fræðsludeginum
Dagskráin er öllum opin og gjaldfrjáls