Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Frístundamessa Árborgar laugardaginn 5. september

  • 5.9.2026, Kappahl höllin

Frístundamessa Árborgar verður haldin í Kappahl-höllinni laugardaginn 5. september kl. 10:00–12:00. Þar gefst börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra tækifæri til að kynna sér fjölbreytt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf sem er í boði í sveitarfélaginu.

Á Frístundamessunni koma saman fjölmörg félög og aðrir aðilar sem standa að frístundastarfi fyrir börn og ungmenni í Árborg. Gestir geta gengið á milli stöðva, kynnt sér starfsemina, hitt fulltrúa félaga og fengið upplýsingar um það starf sem verður í boði í vetur. Á mörgum stöðvum verður jafnframt hægt að prófa ýmislegt og spreyta sig á skemmtilegum verkefnum og viðfangsefnum. Markmið Frístundamessunnar er að gera börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra auðveldara að kynna sér á einum stað þá fjölbreyttu möguleika sem standa þeim til boða og vonandi finna eitthvað við sitt hæfi. Við hvetjum fjölskyldur til að kíkja við á laugardeginum, kynna sér fjölbreytt frístundastarf í Árborg og eiga skemmtilega stund saman. 

Ert þú með starfsemi sem á heima á Frístundamessunni? Aðilar sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða æskulýðsstarfi fyrir börn og ungmenni og hafa áhuga á að taka þátt í Frístundamessunni geta haft samband í tölvupósti á elly.t@arborg.is fyrir nánari upplýsingar. 

Fristundamessa-2026-islenska

Fristundamessa-2026-enska

Fristundamessa-2026-polska


Viðburðadagatal

6.8.2026 - 14.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.

Sjá nánar
 

6.8.2026 - 14.9.2026 Sundhöll Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.  

Sjá nánar
 
8702529f-e1b4-493f-85b5-860f6338f9a3

5.9.2026 BrimRót Furður og fantasíur. Endalok heimsins

Viðburðurinn er hluti af Haustgildi - menning er matarkista 05. - 06.09. á Stokkseyri

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica