Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Teikninámskeið fyrir fullorðna og unglinga

  • 6.9.2026 - 29.10.2026, Selið

ARRA stúdíó, sem er rekið af myndlistarkonunum og hönnuðunum Ragnheiði Ástu Valgeirsdóttur og Amy Alice Riches, er að setja af stað 8 vikna myndlistarnámskeið á Selfossi. Í haust 2026 verða í boði tvö teikninámskeið fyrir fullorðna og ungmenni í "Teikningu I". Seinasti skráningardagur er 6. september 2026.

Þessi námskeið henta þeim sem hafa alltaf viljað læra að teikna en aldrei gefið sér tíma til þess eða eru að taka sín fyrstu skref í teikningu. Þau sem eru lengra komin eða vilja rifja upp grunnatriði klassískar teikningar eru einnig velkomin, þar sem við aðlögum efnið að getu hvers og eins.

Markmiðið er að þjálfa góðan grunn í teikningu, skilning á efninu og öryggi til þess að teikna á eigin vegum. Einnig er mikilvægt að finna gleðina og núvitundina sem teikning getur gefið okkur í listinni og daglegu lífi.

Teikning I fyrir fullorðna: 9. sep – 28. okt / Miðvikudaga kl 19:00-22:00 / 8 vikur

Teikning I 13-16 ára: 10. sep – 29. okt / Fimmtudaga kl 16:30-18:30 / 8 vikur


Frekari upplýsingar um námskeiðin, verð og skráningu má finna á www.arra.is/namskeid
Einnig má hafa samband á listastudio@arra.is eða í síma 691-9920 .

ARRA-both-courses-post-edit


Viðburðadagatal

6.9.2026 - 29.10.2026 Selið Teikninámskeið fyrir fullorðna og unglinga

ARRA stúdíó, sem er rekið af myndlistarkonunum og hönnuðunum Ragnheiði Ástu Valgeirsdóttur og Amy Alice Riches, er að setja af stað 8 vikna myndlistarnámskeið á Selfossi. Í haust 2026 verða í boði tvö teikninámskeið fyrir fullorðna og ungmenni í "Teikningu I". Seinasti skráningardagur er 6. september 2026.

Sjá nánar
 

19.9.2026 - 10.10.2026 Listagjáin Skapandi HP-ingar sýna verk sín í Listagjánni

Nú stendur yfir sýningin SKAPANDI HP-INGAR í Listagjánni, sýningarsal Bókasafns Árborgar á Selfossi. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum handgerðum munum og ljósmyndum sem starfsfólk Kökugerðar HP skapar í frítíma sínum.

Sjá nánar
 

22.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

 Komdu að tala íslensku hefst aftur þriðjudaginn 8. september! / Komdu að tala íslensku is restarting on Tuesday September 8! Everybody welcome!

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica