Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Furður og fantasíur. Endalok heimsins

  • 5.9.2026, BrimRót

Viðburðurinn er hluti af Haustgildi - menning er matarkista 05. - 06.09. á Stokkseyri

  • 8702529f-e1b4-493f-85b5-860f6338f9a3

Fantasíur og vísindaskáldskapur hefur verið að ryðja sér til rúms í íslenskum bókmenntum undanfarið. Höfundar eru farnir að kljást við þær stóru spurningar sem framtíðin hefur í för og gríðarlegar breytingar sem gætu riðið yfir heiminn. Engar áhyggjur samt, heimurinn er ekkert að fara að farast, enn sem komið er. En það er áhugavert að velta fyrir sér hvernig og hvað tekur við.

Í bókum Inga Markússonar skapar hann heim í óræðri framtíð á plánetunni jörð. Mannkynið hefur þurrkast út og einu leifar mannkyns eru rústir borga, nístingskuldi og skringilegar vélar. Nýtt kyn er tekið við; Stjarneygingar, Ístúatörur og stór heimskautadýr. Þar eru líka seiðfólk og galdur liggur í loftinu. Trúin á birtu stjarnanna hefur haldið samfélaginu saman en svo þegar þær hverfa, hvað tekur þá við.

Nína Ólafsdóttir tekst á við nærtækari framtíð á plánetunni jörð. Sögupersónan ferðast um kaldar slóðir sem lítur út fyrir að vera á Grænlandi. Í upphafi bókar lendir hún hins vegar á ísjaka sem ber hana að meginlandi Evrópu, norðarlega. Sagan fylgir henni svo þar sem hún ferðast um álfuna í átt að Miðjarðahafinu. Með henni í för er hundurinn hennar, vinur og eini félagi á ferð hennar. Samband þeirra er sterkt og einstaklega vel lýst gegnum allar þær hrakningar sem þau lenda í.

Þessar bækur Inga og Nínu eru þeirra fyrsta verk og tök þeirra á tungumálinu og stíll í lýsingum á harðneskjulegri veröld sýnir vel hversu efnilegir höfundar eru hér á ferð.

Upplestur-a-Brimrot-05.09.-kl.-13


Viðburðadagatal

6.9.2026 - 29.10.2026 Selið Teikninámskeið fyrir fullorðna og unglinga

ARRA stúdíó, sem er rekið af myndlistarkonunum og hönnuðunum Ragnheiði Ástu Valgeirsdóttur og Amy Alice Riches, er að setja af stað 8 vikna myndlistarnámskeið á Selfossi. Í haust 2026 verða í boði tvö teikninámskeið fyrir fullorðna og ungmenni í "Teikningu I". Seinasti skráningardagur er 6. september 2026.

Sjá nánar
 

19.9.2026 - 10.10.2026 Listagjáin Skapandi HP-ingar sýna verk sín í Listagjánni

Nú stendur yfir sýningin SKAPANDI HP-INGAR í Listagjánni, sýningarsal Bókasafns Árborgar á Selfossi. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum handgerðum munum og ljósmyndum sem starfsfólk Kökugerðar HP skapar í frítíma sínum.

Sjá nánar
 

22.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

 Komdu að tala íslensku hefst aftur þriðjudaginn 8. september! / Komdu að tala íslensku is restarting on Tuesday September 8! Everybody welcome!

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica