Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Laugardaginn 29. ágúst

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Hinseginvika Árborgar

  • 17.1.2022 - 23.1.2022, Sveitarfélagið Árborg

Vikuna 17. - 23. janúar 2022 ætlar Forvarnateymi Árborgar í samvinnu við sveitarfélagið að halda sína fyrstu Hinseginviku frá upphafi.

Hátíðin er haldin til að auka fræðslu, skapa umræður og veita stuðning til þeirra sem tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt.

Til að mynda verða lesnar bækur um hinsegin málefni í leikskólum sveitarfélagsins, regnbogafánum verður flaggað víðsvegar um bæinn og ætlar GK bakarí að baka í regnbogalitum. Við hvetjum fleiri fyrirtæki og stofnanir sveitarfélagsins til að taka þátt með einum eða öðrum hætti.
Að lokum hvetjum við alla íbúa að klæðast regnbogalitum þann 19. janúar og sýna þannig samstöðu og stuðning.

Þann 17. janúar kl. 20:30 verður fræðsla á TEAMS í boði frá Samtökunum ‘78 fyrir íbúa sveitarfélagsins.

Í fræðslunni verður farið yfir grunninn að hinseginleikanum, fjallað um kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni og kyntjáningu. Farið er yfir helstu grunnhugtök og orðanotkun tengda hinseginleikanum og fjallað um starf Samtakanna '78.

Tengill á TEAMS fræðslu

Hægt er að senda inn nafnlausar spurningar sem fyrirlesarinn mun taka fyrir í lok fyrirlestursins

Tengill til að senda inn spurningar

Nánari upplýsingar um Hinseginvikuna birtast hér á vefsíðu sveitarfélagsins og samfélagsmiðlum þegar nær dregur og á Facebook síðu Samtakana 78, Fræðsla frá Samtökunum ‘78

Við hvetjum öll til að opna hug sinn fyrir málefninu, taka þátt í að fagna fjölbreytaleikanum

Arborg-flagg-copy


Viðburðadagatal

6.8.2026 - 14.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.

Sjá nánar
 

6.8.2026 - 14.9.2026 Sundhöll Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.  

Sjá nánar
 
Frettatilkynningar20x30-5-

27.8.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Ástin og Ísfólkið

Fimmtudaginn 27.ágúst kl. 19:30. Rómantískur ágústmánuður er nú runninn upp og við fáum einstaklega skemmtilega fyrirlesara til að fjalla um ástina og Ísfólkið. Katrín Jakobsdóttir, okkar eina sanna, fjallar um ástarsögur og Brynhildur Björnsdóttir fjallar um bókaflokkinn "Ísfólkið" eftir Margit Sandemo.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica